Fjárfesting í fiskeldi aldrei meiri

Fáar atvinnugreinar hér á landi hafa verið í jafn mikilli sókn á undanförnum árum og fiskeldi. Sú mikla uppbygging sem hefur átt sér stað kemur eðlilega ekki til af sjálfu sér enda liggur gríðarleg vinna og fjármagn að baki við skipulag og framkvæmdir af hálfu fyrirtækjanna. Þetta kemur fram kemur í Radarnum – fréttabréfi SFS. […]
Addi í London kveður VSV

Addi í London (Ísleifur Arnar Vignisson) á að baki langan og farsælan starfsferil í sjávarútvegnum. Fyrst hjá Fiskiðjunni og síðan hjá Vinnslustöðinni. Hann hefur nú unnið sinn síðasta vinnudag hjá VSV og af því tilefni er litið yfir feril hans í viðtali á Vinnslustöðvarvefnum. Viðtalið má einnig lesa hér að neðan. „Ég varð sjötugur 21. […]
Bærinn og Viska í samstarf um Mey

Vestmannaeyjabær og Viska hafa gert með sér samstarfssamning vegna Mey – kvennaráðstefnu þar sem markmiðið er að styðja við kraft kvenna, efla menningarlíf og lengja ferðaþjónustutímabilið. Samningurinn var af Íris Róbertsdóttur, bæjarstjóra og Minnu Björk Ágústsdóttur, forstöðumanni Visku, að því er segir í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar. Mey var haldin í fyrsta skipti í fyrra […]
Lagnir teknar á land

Nú standa yfir framkvæmdir við smábátabryggjurnar í Vestmannaeyjahöfn. Búið er að flytja til stórgrýti og nú er verið að moka upp efni. Að sögn Dóru Bjarkar Gunnarsdóttur, hafnarstjóra er verið að moka til að taka í land frárennslislagnirnar sem búið er að moka fyrir þvert yfir höfnina. Ljósmyndari Eyjar.net smellti meðfylgjandi myndum í gær. (meira…)
Hjólum inn í sumarið…

Sumarið er á næsta leiti og ekki úr vegi að fara að huga að reiðhjólum og pallasmíði fyrir veðurblíðuna í sumar. Verslun Skipalyftunnar býður upp á úrval reiðhjóla af ýmsum stærðum og gerðum. Þar má fá hjól og hjálma fyrir börnin, unglingana sem og fullorðna. Einnig má fá pallaefnið og allt sem þarf í pallasmíði […]
Fimm verkefni hljóta styrk

Á síðasta fundi fræðsluráðs Vestmannaeyja fór deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála bæjarins yfir umsóknir í Þróunarsjóð leik-, grunn- og tónlistarskóla fyrir árið 2024. Alls bárust átta umsóknir í sjóðinn þetta árið. Fimm verkefni hljóta styrk að heildarupphæð 4.350.000,-. Í niðurstöðu er umsækjendum þakkað fyrir umsóknirnar, sem verður svarað fyrir 30. apríl nk. eins og reglur sjóðsins […]
Lundinn sestur upp

Fyrstu lundarnir settust upp í Vestmannaeyjum í dag. Lundinn sást í og við Kaplagjótu við Dalfjall í kvöld. Í Vestmannaeyjum er ekki síður talað um lundann sem vorboðann ljúfa en lóuna. Lundinn er á sínu vanalega róli, því ef skoðuð eru síðustu ár þá má sjá að hann er að setjast upp á bilinu 13 […]
Einar nýr formaður Ísfélagsins

Aðalfundur Ísfélags hf. var haldinn í Vestmannaeyjum sem og rafrænt í dag. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að mætt hafi verið fyrir 82,7 % atkvæða á fundinn. Á fundinum var samþykkt að arðgreiðsla á árinu 2024 vegna rekstrarársins 2023 verði 2,57 kr. á hlut eða 2.100.000 milljónir kr. Í stjórn félagsins voru kjörin: Guðbjörg […]
Lánaður frá HK til ÍBV

Hinn 22 ára Eiður Atli Rúnarsson hefur gengið til liðs við ÍBV á lánssamningi sem gildir út keppnistímabilið 2024. Í tilkynningu frá ÍBV segir að Eiður sé varnarmaður sem er uppalinn hjá HK sem lánar hann til ÍBV, samningur Eiðs við HK rennur út að loknu keppnistímabilinu 2025. Eiður byrjaði alla leiki HK í Lengjubikarnum […]
Petar áfram í Eyjum

Petar Jokanovic hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Petar, sem er frá Bosníu hefur verið einn af lykilmönnum síðustu ár og meðal annars verið bikarmeistari og nú síðast Íslandsmeistri með ÍBV. Hann er 33 ára og hefur leikið með ÍBV síðan árið 2019. (meira…)
Vortónleikar í Höllinni

Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur fagnar vorinu með heimsókn til Vestmannaeyja og heldur tónleika á uppstigningardag þann 9. maí nk. kl.17.00 í Höllinni. Páll Óskar sérstakur gestur Yfirskrift tónleikanna er Hann og þeir en kórinn syngur að þessu sinni perlur dægurtónlistar eftir íslenska karlhöfunda eins og Magnús Eiríksson, Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson, Bubba Morthens, Egil Ólafsson, Friðrik […]
Meistararnir lána ÍBV miðjumann

Knattspyrnumaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson hefur gengið til liðs við ÍBV á lánssamningi sem gildir út keppnistímabilið 2024. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bjarki kemur til ÍBV á láni en hann lék 11 leiki með ÍBV á síðustu leiktíð, leikirnir hefðu vafalaust verið fleiri ef ekki hefði verið fyrir meiðsli Bjarka, segir í tilkynningu […]
ÍBV með dagskrá í miðbænum á Þjóðhátíð

Umsóknir frá ÍBV íþróttafélagi um afnot af Herjólfsdal vegna hátíðarhalda á Þjóðhátíð voru teknar fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í byrjun vikunnar. Einnig óskaði ÍBV-íþróttafélag eftir afnotum af portinu við Hvítahúsið fyrir Húkkaraball sem mun standa frá 23:00-4:00. Að lokum var sótt um leyfi til skemmtanahalds á bílastæði í eigu Ísfélags við Miðstræti fyrir […]
„20 tíma í hvorum túr að fá fullfermi”

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu fullfermi sl. laugardag í heimahöfn í Vestmannaeyjum. Systurskipin lönduðu síðan aftur fullfermi í Eyjum í gær. Rætt er við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir hann að það hefði verið hörkuveiði að undanförnu. „Við lönduðum fullfermi á laugardag og aftur í gær og það […]
660 milljónir áætlaðar í viðbyggingu

Breytt deiliskipulag íþróttasvæðis við Hástein er nú í kynningarferli. Í fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar er gert ráð fyrir 180 milljónum til verksins í ár. Þá er gert ráð fyrir í þriggja ára áætlun að árið 2025 fari 240 milljónir í framkvæmdina og aðrar 240 milljónir árið 2026. Um er að ræða viðbyggingu við Íþróttamiðstöðina upp á 1800 […]
ÍBV mætir Grindavík í bikarnum

Í gær var dregið í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla. Þar fékk ÍBV heimaleik og mæta þeir Grindavík, en leikirnir í þessari umferð fara fram dagana 24.-25. apríl. 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla Haukar – Vestri Árbær – Fram KÁ – KR ÍBV – Grindavík Grótta – Þór ÍH – Hafnir Valur – FH Afturelding – Dalvík/Reynir ÍA […]
ÍBV í undanúrslit

Kvennalið ÍBV tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum úrslitakeppni Íslandsmótsins í handknattleik. Stelpurnar gerðu góða ferð í borgina og sigruðu ÍR, 22:18. ÍBV vann því einvígið 2:0 og mætir Val í undanúrslitum. Þóra Björg Stefánsdóttir skoraði flest mörkin hjá ÍBV í kvöld, fimm talsins. Næst markahæst var Birna Berg Haraldsdóttir með fjögur mörk. Þá varði […]
Gunnlaugur hættir í stjórn Ísfélagsins

Aðalfundur Ísfélagsins verður haldinn næstkomandi miðvikudag. Fimm hafa boðið sig fram til setu í aðalstjórn félagsins og verður því sjálfkjörið í stjórnina. Athygli vekur að núverandi stjórnarformaður, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson gefur ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Gunnlaugur Sævar hefur átt sæti í stjórninni frá árinu 1991. Sigríður Vala Halldórsdóttir, stjórnarmaður í Viðskiptaráði Íslands og […]
Höldum áfram!

Í september 2021 skrifuðu forsætisráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, og bæjarstjóri, fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, undir sameiginlega viljayfirlýsingu sem fól m.a. í sér kaup á listaverki í tilefni 50 ára goslokaafmælis. Á þeim grundvelli lagði forsætisráðherra fram þingsályktunartillögu um sama efni þann 13. júní 2022 sem var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á Alþingi. Síðan þá hafa […]
Stígandi áhyggjur listaverks

Skipulagsmál hafa verið fyrirferðamikil í stjórnsýslu sveitarfélaga til langs tíma. Það eru vonbrigði fyrir okkur í minnihlutanum þegar sjónarmiðin sem hafa gilt um skipulagsmál í sveitarfélaginu, eigi ekki að gilda um göngustígagerð í Eldfelli. Aðdragandinn Ég verð að viðurkenna mikla meðvirkni sem ég féll í sumarið 2022 þegar hugmyndin að listaverkinu kom fyrst fram í […]