Stilla vill nýjan hluthafafund og nýja stjórn
Eigendur rúmlega þriðjungs hlutafjár í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum krefjast þess að hluthafafundur verði haldinn hið fyrsta og að ný stjórn verði kosin. Í síðustu viku samþykkti hluthafafundur að afskrá Vinnslustöðina í Kauphöllinni. (meira…)
�?k á kyrrstæða bifreið og stakk af
Ökumaður stakk af eftir að hann varð valdur að árekstri Grænuvöllum á Selfossi um kl. 23:30 á þriðjudagskvöld. Að sögn lögreglu var ekið á kyrrstæða og mannlausa bifreið með þeim afleiðingum að hún stórskemmdist, þeyttist út á miðja götu og glerbrot lágu á víð og dreif. (meira…)
Samstarf um endurheimt Hagavatns
Landgræðsla ríkisins, Bláskógabyggð, landeigendur Úthlíðartorfunnar og Orkuveita Reykjavíkur hafa ákveðið að hafa með sér samstarf um að kanna möguleika þess að endurheimta fyrri stærð Hagavatns. Öðrum hagsmunaaðilum verður jafnframt boðið að taka þátt í samstarfinu. Markmið endurheimtar Hagavatns er að hefta sandfok sunnan Langjökuls og verða möguleikar á raforkuframleiðslu þar kannaðir samhliða. (meira…)
Menningar-salurinn boðinn sveitarfélaginu
Eigendur Hótel Selfoss hafa boðið Sveitarfélaginu Árborg að kaupa svokallaðan menningarsal hótelbyggingarinnar. Þorvaldur Guðmundsson, formaður bæjarráðs Árborgar, segir að verið sé að skoða tilboðið. (meira…)
Taekwondodeild stofnuð
Stofnfundur taekwondódeildar Umf. Selfoss var haldinn fimmtudaginn 8. nóvember.Stjórn deildarinnar skipa Ófeigur Ágúst Leifsson formaður, Katrín Hjálmarsdóttir gjaldkeri og Bjarnheiður Ástgeirsdóttir, Pétur Jensson og Daníel Jens Pétursson meðstjórnendur. (meira…)
Enginn ók of hratt
Alla síðustu viku kærði lögreglan á Selfossi engan ökumann fyrir hraðakstur og eru „ár og dagar síðan slíkt hefur gerst í Árnessýslu, eins og það er orðað í dagbók lögreglunnar. “ (meira…)
Söngkeppnir á sama tíma
Bæði Menntaskólinn að Laugarvatni og Fjölbrautaskóli Suðurlands halda árlega söngkeppni í kvöld, fimmtudagskvöld. (meira…)
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi heldur aðalfund sinn laugardaginn 17. nóvember n.k. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu í Sandgerði klukkan 16.00. Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf. Gestir fundarins verða Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Þá munu þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu taka þátt í fundinum (meira…)
Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi heldur aðalfund sinn laugardaginn 17. nóvember n.k. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu í Sandgerði klukkan 16.00. Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf. Gestir fundarins verða Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Þá munu þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu taka þátt í fundinum. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi […]
Heildaraflinn eykst um átta þúsund tonn milli ára

Heildarafli íslenskra skipa í október var rúm 98 þúsund tonn en það er átta þúsund tonnum meiri afli en var í október í fyrra samkvæmt tölum Fiskistofu. Fram kemur á vef stofnunarinnar að aukinn afli skýrist af tæplega 15 þúsund tonna aukningu á síldarafla milli ára. Á móti kemur minni afli í þorski og kolmunna […]
Eldgos hefst í Surtsey

Surtsey fór að gjósa þennan dag fyrir 44 árum síðan. Vart varð við gosið klukkan rúmlega sjö að morgni þegar það braust upp út yfirborði sjávar skammt frá þar sem fiskibáturinn Ísleifur II frá Vestmannaeyjum var staddur. Skipverjar mældu sjávarhita í hálfrar mílu fjárlægð og reyndist hitastigið vera nálægt tíu gráðum. Gosið magnaðist hratt og […]
Örlagadagur
Dagurinn í dag er örlagadagur í lífi vinar míns og fyrrverandi bekkjabróður hans Ólafs Jóhanns. Í dag tilkynnti þessi yngsti starfandi prestur landsins formlega að hann væri uppgjafar-Vestmannaeyingur. Þó hann reyni af veikum mætti að halda í það litla stolt sem hann þó hafði meðan hann gat með sanni sagst vera Eyjamaður og básúnar […]
Skora á bæjarstjórn að efna til kosninga um Bakkafjöru
Nú liggur fyrir í verslunum bæjarins undirskriftalisti þar sem skorað er á bæjarstjórn að efna til kosninga á viðhorfi fólks til væntanlegrar hafnar í Bakkafjöru. Rúmlega eitt hundrað manns höfðu þegar skrifað undir listann í Vöruval og í Krónunni en listanum var dreift seint í gærkvöldi. (meira…)
Unglingarnir til fyrirmyndar

Söngkeppni Samfés, í Suðurlands & Suðurnesjariðli var haldin með pompi og prakt um síðustu helgina í Vogum á Vatnsleysuströnd. Helgin gekk frábærlega vel og voru um 400 unglingar sem tóku þátt í fjörinu. (meira…)
Jólasmiðja og ljósmyndanámskeið framundan hjá Visku

Þó svo að það styttist í jólin þá er nóg að gera hjá Visku fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja. Nýverið gerði Viska samning við samstarfssamning við Háskólann á Bifröst. Framundan eru námskeið í innpökkun á jólagjöfum, námskeið um vín og ljósmyndun. Borð og pakkaskreytingarLaugardaginn 17. nóvember kl.13:00-15:00 verður haldið námskeið í borð- og pakkaskreytingum. Berglind Erlingsdóttir, […]
Tónleikar Mugison í Höllinni

Síðasta föstudagskvöld voru tónleikar í Höllinni með Mugison og hljómsveit hans. Voru þessir tónleikar liður í menningardagskrá helgarinnar Nótt safnanna sem þótti takast frábærlega. Greinilegt var á tónleikargestum að Mugison var að gera góða hluti á sviðinu og Höllin var þétt setin. Diddi Vídó tók þessar myndir (meira…)
Betra skip

Á dauða mínum átti ég frekar von en að ég yrði áhugamaður um hönnun á skipum og ferjum. Svo er nú hinsvegar komið að ég hef orðið nokkuð gaman af þessum skipa pælingum. Auðvitað er ég eins langt frá því og hægt er að vera sérfræðingur á því sviði, reyndar þekki ég lítið til annars […]
1000 tonna kast hjá Guðmundi VE

Samkvæmt bloggsíðu Þorbjörns Víglundssonar sem er í áhöfn Guðmundar VE gengur vel á síldarmiðunum. Guðmundur VE fékk í gær um 1000 tonn í einu kasti og fyllti Guðmundur VE sig og gaf svo restina til Sighvatar Bjarnasonar VE, Hákon EA og Bjarna Ólafssonar AEK. Síldin veiðist nú við Grundarfjörð og er þar mikill fjöldi skipa […]
ég ætla mér að minnsta kosti ekki að stofna trúfélag í Eyjum

www.eyjar.net heldur uppteknum hætti og heyrir í brottfluttum eyjamönnum bæði innanlands sem og erlendis með þeim tilgangi að fá að vita hvar þau eru stödd í lífinu og hvaða viðhorf þau hafa til Vestmannaeyja. Að þessu sinni heyrðum við í sr. Ólafi Jóhanni Borgþórssyni, en sr. Ólafur Jóhann starfar sem prestur í Seljakirkju í Reykjavík. […]
Ekið á gangandi vegfaranda

Karlmaður varð fyrir bíl í Hveragerði á sunnudag á gatnamótum Heiðmarkar og Finnmarkar en slapp með minni háttar meiðsli, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. (meira…)