Búið að hífa fyrsta hal.

Jæja þá er búið að kasta og hífa fyrsta halið í þessum túr. Við köstuðum Viktoríunni hér um miðnótt og var svo híft um fjögur. Síldin dýpktaði á sér fljótlega eftir að það var kastað svo við ætlum að lúðra út stóra trollinu.Pokinn var rétt að skríða á síðuna og mundi ég skjóta á að […]

Bótakröfu á hendur tveimur olíufélögum vísað frá

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá bótakröfu útgerðarfélagsins Dala-Rafns í Vestmanneyjum á hendur Keri og Olís, vegna ólöglegs samráðs félaganna við sölu á eldsneyti. Ekki er hins vegar vísað frá máli Dala-Rafns gegn Skeljungi. Dala-Rafn taldi að olíufélögin þrjú bæru ábyrgð á tjóni, sem útgerðin hefði orðið fyrir á árunum 1996-2001 vegna missis hagnaðar. Segir í […]

Hvalasmölun gekk vel

morgun hófust björgunaraðgerðir í höfninni en þar höfðu tveir hvalir verið fastir síðustu tvo sólarhringa. Kallað var til björgunarbátsins Þórs auk Lóðsins, hafnsögubátsins í Vestmannaeyjum og auk þess tóku fimm aðrir smábátar þátt í aðgerðinni. Smölunin hófst rétt fyrir níu í morgun og um hálf ellefu syntu hvalirnir út úr hafnarmynninu.Fjöldi manns fylgdist með aðgerðunum, […]

Kétkrókur á skilorði

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í þrettán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að rjúfa skilorð með því að setla hangikjötslæri í Bónus í Hveragerði. Þetta er þriðji dómur mannsins fyrir þjófnað. (meira…)

Björgunaraðgerðir tókust vel

Í morgun hófust björgunaraðgerðir í höfninni en þar höfðu tveir hvalir verið fastir síðustu tvo sólarhringa. Kallað var til björgunarbátsins Þórs auk Lóðsins, hafnsögubátsins í Vestmannaeyjum og auk þess tóku fimm aðrir smábátar þátt í aðgerðinni. Smölunin hófst rétt fyrir níu í morgun og um hálf ellefu syntu hvalirnir út úr hafnarmynninu. (meira…)

Árlega GOS mótinu lokið

Hið árlega GOS mót, Golfmót Opinberra Starfsmanna í Eyjum, fór fram sl. föstudag á golfvelli GV. Keppt var með Texas scramble fyrirkomulagi. Keppendur komu frá nokkrum ríkisstofnunum í Eyjum, s.s. sýslumanninum, lögreglu, Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Úrslit urðu sem hér segir 1. sætir Sigfríð Björgvinsdóttir og Gunnlaugur Grettisson, 43 högg 1. sæti Svavar […]

Flotbauja losnaði frá festingum sínum

Átakaveður var í Vestmannaeyjum á laugardag, svo slæmt var veðrið að flotbaujann við sem liggur við Skansinn losnaði og liggur á þurru í skansfjörunni. Sjófarendur þurfa ei að óttast því lýsing frá Listaverki Gríms Marinó lýsir þeim veginn. Þó svo komið sé í miðjan september eru lundapysjurnar enn að enda, krökkum til mikillar og gleði […]

�?órlindur kjörinn formaður SUS

Þórlindur Kjartansson var kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna með 90,5 prósent atkvæða á sambandsþingi ungra sjálfstæðismanna á Seyðisfirði í dag. Alls greiddu 171 ungir sjálfstæðismenn atkvæði á þinginu og hlaut Þórlindur 152 atkvæði. Teitur Björn Einarsson var kjörinn fyrsti varaformaður og hlaut hann 129 atkvæði. (meira…)

Þórlindur Kjartansson nýkjörinn formaður SUS

Þórlindur Kjartansson var kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna með 90,5 prósent atkvæða á sambandsþingi ungra sjálfstæðismanna á Seyðisfirði í dag. Alls greiddu 171 ungir sjálfstæðismenn atkvæði á þinginu og hlaut Þórlindur 152 atkvæði. Teitur Björn Einarsson var kjörinn fyrsti varaformaður og hlaut hann 129 atkvæði. Sjálfkjörið var í öll stjórnarsæti. 26 taka sæti í stjórn […]

1. deildin: ÍBV sigraði Grindavík

Created by PhotoWatermark Professional

ÍBV – Grindavík 2-1 0-1 Paul McShane1-1 Ian Jeffs2-1 Ian Jeffs ÍBV á enn möguleika á að komast upp í Landsbankadeild karla eftir góðan 2-1 sigur á Grindavík í eyjum í dag.  Paul McShane kom Grindvíkingum yfir en 2 mörk frá Ian Jeffs tryggðu heimamönnum mikilvægan sigur.  Eftir sigurinn eru Eyjamenn aðeins þrem stigum á […]

Sanngjarn sigur gegn Grindvíkingum

Leikmenn ÍBV halda voninni enn lifandi um úrvalsdeildarsæti en í dag lögðu Eyjamenn Grindvíkinga að velli 2:1 á Hásteinsvellinum. Aðstæður til knattspyrnuiðkunnar í dag voru nokkuð erfiðar, austan rok og skítakuldi. Hins vegar var leikurinn ágætlega fjörugur og úrslitin góð. (meira…)

Staðbundinn veðurspá úr Brandinum

Engin þjóð er eins upptekin af veðri og sú íslenska og á mörgum heimilum má heyra saumnál detta þegar veðurfréttir eru í sjónvarpi eða útvarpi. Stórhöfði í Vestmannaeyjum er líklega sú veðurstöð á Íslandi og þó víðar væri leitað sem fær hvað flesta metra á sekúndu í gegnum sitt kerfi.En Norðmenn hafa líka áhuga á […]

Rann til í slabbi

Ökumaður fólksbíls var fluttur á slysadeild í Reykjavík eftir árekstur í Kömbunum um sjö leytið í kvöld. Veginum var lokað í kjölfarið en opnaður aftur um klukkan hálf níu. (meira…)

Báðum leikjunum frestað

Nú er komið í ljós að bæði knattspyrnu- og handboltaleik sem fram áttu að fara í Vestmannaeyjum í dag hefur verið frestað. Í knattspyrnunni átti ÍBV að leika gegn Grindavík en í handboltanum átti ÍBV að spila gegn Fram í fyrsta leik Íslandsmótsins. Báðir leikirnir munu hins vegar fara fram á morgun, á sama tíma. […]

Leik ÍBV og Grindavíkur frestað

Leik ÍBV og Grindavíkur í 1. deild karla í knattspyrnu, sem átti að hefjast núna klukkan 14.00 hefur verið frestað til morguns. Ekki hefur verið flugfært milli lands og Eyja í dag eða í morgun og enn er ófært. Líklegt er að leikurinn verði á sama tíma á morgun en það hefur ekki fengist staðfest. […]

Hvalir í höfninni í Vestmannaeyjum

Tveir hvalir hafa verið að dóla í höfninni í Vestmannaeyjum í dag, nánar tiltekið við Friðarhöfn. Talið er að um sé að ræða tvær andarnefjur og allt bendir til þess að þær hafi villst inn í höfnina og rati ekki út aftur. Eins og gefur að skilja vakti koma hvalanna mikla athygli enda ekki á […]

Vinir Ketils Bónda opna dansskóla í eyjum

Óstaðfestar heimildir úr vinnuskúr Steina og Olla gefa það til kynna að félagsskapurinn Vinir Ketils Bónda hafi sótt um styrk hjá Vaxtarsamningi Vestmannaeyja og Suðurlands vegna reksturs á Dansskóla Ketils Bónda. Félagar Ketils Bónda hafa undanfarið verið að skoða húsnæði undir starfsemi sína sögur herma að þeir félagar horfi hýru auga til húsnæðis Betel safnaðarins […]

Vill afnema veiðigjald af útgerðum

Elliði Vignisson í Vestmannaeyjum vill afnema veiðileyfagjald af útgerðum. Sjávarútvegsfyrirtæki í Vestmannaeyjum greiða um 120 milljónir á ári í veiðileyfagjald. Hann segir það ekki rétt af ríkisstjórninni að lofa einhverjum mótvægisaðgerðum og innheimta á sama tíma sértækan skatt af sjávarútvegsfyrirtækjum. Elliði segir að hagkerfi Vestmannaeyja verði fyrir 3,6 milljarða króna tapi vegna niðurskurðar á þorskvóta. […]

Hnefaleikafélagið fær aðstöðu í Félagsheimilinu

Hnefaleikafélag Vestmannaeyja hefur fengið framtíðar húsnæði undir æfingar sínar en félagið hefur verið á “götunni” undanfarna mánuði eftir að það missti síðasta æfingarhúsnæði. Hnefaleikafélagið hefur nú fengið til afnota aðstöðu á efstu hæð í Félagsheimilinu. Hnefaleikafélagið er ungt en öflugt félag og mun þessi nýja aðstaða þeirra efla félagið til muna. Félagið fékk að gjöf […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.