Borgarafundur 20. maí vegna sveitarstjórnarkosninga

Suðurland FM �?? �?tvarp Suðurlands verður á faraldsfæti í maí og mun standa fyrir opnum borgarafundum og verða með framboðsfundi í beinni útsendingu síðustu tvær vikurnar fyrir kosningar. Alls verða fundirnir sex talsins og verður útvarpað beint frá hverju bæjarfélagi þann dag sem fundurinn er. Rætt verður við forystumenn flokkanna og farið yfir þau mál […]

Háskólalestin í Eyjum

Biophilia-tónvísindasmiðjur fyrir yngstu kynslóðina og lifandi og skemmtileg vísindaveisla fyrir alla fjölskylduna verður í boði þegar Háskólalest Háskóla Íslands heimsækir Vestmannaeyjar dagana 16. og 17. maí. Eyjar eru annar áfangastaður lestarinnar í maímánuði. Háskólalestin fer nú í fjórða sinn um landið en hún fór í sínar fyrstu ferðir á aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011. Í […]

Gerum betur

Skólamál grunnskólans er mikilvægur málaflokkur sem Vestmannaeyjabær ber ábyrgð á. Fyrir skömmu var framboðsfundur í Akóges þar sem framboðin fengu fyrirspurn um hvort við hefðum einhvern metnað í skólamálum grunnskólans. �?g var ein þeirra sem svaraði en eitthvað virðist hafa verið snúið út úr orðum mínum í umræðunni. Fulltrúi E-listans sem talaði á undan mér […]

Kennarar fylkja liði í kjarabaráttu

User comments

Í morgun hófst sólarhrings verkfall grunnskólakennara, til að þrýsta á lausn í kjaradeilu þeirra við sveitarfélögin. Í Eyjum gengu kennararnir um götur bæjarins til að vekja athygli á kröfum sínum. Göngunni lauk svo við Ráðhúsið. Fundur hefur verið boðaður í kennaradeilunni kl. 16.00 í dag og var þokkalega gott hljóð í samninganefndarmönnum samkvæmt fréttum í […]

ÍBV fær Hauka á Hásteinsvöll

Í hádeginu var dregið í 32 liða úrslitum í Borgunarbikarkeppni karla í knattspyrnu. ÍBV drógst á móti Haukum frá Hafnarfirði, kunnuglegum mótherja í handboltanum. Leikið verður á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 27. maí n.k. (meira…)

Vestmannaeyjabær með móttöku í kvöld eftir seinustu ferð

Í Vestmannaeyjum renna oft upp stórir dagar á íþróttasviðinu. Dagurinn í dag er þegar orðinn stór og getur hæglega orðið einn af þeim stærri. Strákarnir okkar mæta í kvöld frábæru liði Hauka. Viðureignin hefur verið stórkostleg og ekki er að efa að leikurinn í kvöld verður það einnig. �?skubuskuævintýri Að sumu leyti er árangur strákanna […]

Á bryggjurölti með Halldóri

�?að er alltaf eitthvað að gerast á bryggjunum í Eyjum. Á sínum venjubundnu bryggjuferðum Halldórs Benedikts kíkti hann víða við, tók spjallið og fylgdist með. Skoðaði og kíkti og myndaði. (meira…)

Biðröð út á bryggju

Gríðarlegur áhugi er fyrir leik Hauka og ÍBV í Hafnarfirði í kvöld. Eyjamenn hyggjast fjölmenna á leikinn og sameinast þar brottfluttum og styðja við sitt lið. Í morgun var opnað fyrir forsölu miða í hópferð á vegum ÍBV-íþróttafélags í afgreiðslu Herjólfs. Strax var komin röð langt út á bryggju eins og sést á meðfylgjandi mynd […]

ÍBV fáninn við hún

�?að er stór dagur í heimi handboltans í Eyjum. �?rslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn fer fram í kvöld. Margir ætla að bregða sér á fastalandið og sjá leikinn og styðja sitt lið. Aðrir ætla að líma sig við sjónvarpsskjáinn í kvöld. Í tilefni dagsins er ÍBV fáninn víða kominn við hún. Í morgun voru starfsmenn Íslandsbanka að […]

Engin kennsla í dag í GRV

Eins og í öðrum grunnskólum landsins, liggur kennsla í Grunnskóla Vestmannaeyja niðri vegna vinnustöðvun kennara. All­ir grunn­skóla­kenn­ar­ar, leiðbein­end­ur, náms- og starfs­ráðgjaf­ar og aðrir þeir sem þiggja laun frá sveit­ar­fé­lög­um sam­kvæmt kjara­samn­ingi KÍ/�??FG við sveit­ar­fé­lög taka þátt í vinnustöðvuninni en skólastjórnendur og aðrir starfsmenn skólans eru í vinnu. Kennsla mun hins vegar fara fram með eðlilegum […]

Baggalútur sendir óvart frá sér nýtt Eyjalag

Hljómsveitin síkáta Baggalútur hefur nú sent frá sér nýtt Eyjalag. �?viljandi að því er virðist. Kemur þetta mörgum á óvart því sveitin var alls ekki beðin um að semja þjóðhátíðarlagið í ár, síst af öllu af Eyjamönnum. �??Við erum bara svo fáránlega ógeðslega spenntir að spila á �?jóðhátíð að þetta bara lak einhvern veginn út,�?? […]

Prófi í Framhaldsskóla ekki frestað fram á sunnudag

Starfsfólk Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum situr nú sveitt við símann vegna þess sem haft var eftir Elliða Vignisson, bæjarstjóra í Eyjafréttum. Kom fram í fréttinni að prófum á föstudegi hefði verið frestað fram á sunnudag. �?að er ekki rétt. Hið rétta er að prófum föstudagsins var frestað um nokkrar klukkustundir, frá 9 til 13 eins og […]

Sérstök framkoma gagnvart Eyjamönnum á Ásvöllum

Haukar auglýstu á heimasíðu sinni forsölu miða á leikinn og í kjölfarið birtist frétt á mbl.is um að forsala miða hefðist síðdegist í dag. Haukum láðist hins vegar að taka fram að forsalan væri eingöngu fyrir stuðningsmenn Hauka, þannig að fjölda Eyjamanna dreif að enda mikill áhugi fyrir leiknum og má búast við að brottfluttir […]

Sigurvin í KFS

KFS fékk í dag góðan liðsstyrk þegar Sigurvin �?lafsson gekk í raðir KFS. Sigurvin er fæddur og uppalinn í Eyjum en á að baki leiki í úrvalsdeild með ÍBV, Fram, KR, FH og Fylki en síðast lék hann með KV í 2. deildinni síðasta sumar. Sigurvin á auk þess sex A-landsleiki að baki. Fyrirliði KFS […]

Fullt verð 1900 krónur

Fyrir bæjarráði lá minnisblað þar sem settar eru fram hugmyndir að aðgangseyri í Eldheima. Bæjarráð samþykkir verðlagningu og það fyrirkomulag sem þar er sett fram. Enn fremur samþykkir bæjarráð að heimamönnum skuli standa til boða ársmiðar í Eldheima fyrir andvirði eins aðgöngumiða. �?annig gildi einn og sami miðinn í safnið í eitt ár. Fullt verð […]

Bílabúð Benna sýnir í Eyjum um helgina

Bílabúð Benna �??brunar�?� með bílalestina sína til Vestmannaeyja um helgina og heldur veglega bílasýningu bæði laugardag og sunnudag. Til sýnis verða nýjustu gæðagripirnir frá Chevrolet sem notið hafa mikilla vinsælda vegna framúrskarandi hönnunar, sparneytni og hagstæðs verðs. Auk þess mun Bílabúð Benna skarta eintaki af nýja rómaða sportjeppanum Porsche Macan, sem og hinum margverðlaunaða Porsche […]

220 rútusæti í boði

ÍBV-íþróttafélag mun bjóða upp á hópferð á leik Hauka og ÍBV á morgun. Leikurinn hefst klukkan 19:45 en brottför frá Eyjum er klukkan 15:00 og Herjólfur siglir svo úr Landeyjahöfn klukkan 23:30. ÍBV hefur yfir að ráða 220 rútusætum en kostnaður fyrir rútu og miða á leikinn er 4.000 kr. 15 ára og yngri greiða […]

Spáði fyrir úrslitaleik gegn Haukum

Eins og margoft hefur komið fram, leika ÍBV og Haukar hreinan úrslitaleik gegn Haukum á morgun í Hafnarfirði um Íslandsmeistaratitilinn. Fáir höfðu trú á að nýliðar ÍBV myndu láta að sér kveða í handboltanum í vetur, hvað þá að liðið færi alla leið í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. En strákarnir höfðu trú á sér og reyndar […]

Prófum frestað vegna leiks ÍBV

Eins og gefur að skilja er mikill áhugi fyrir handboltaleik ÍBV og Hauka í Hafnarfirði á morgun, fimmtudag enda er um að ræða hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Fjölmargir mun leggja land undir fót og fara á leikinn frá Eyjum en Herjólfur býður stuðningsmönnum fría ferð en greiða þarf fyrir bíl. Nú hafa skólayfirvöld í Framhaldsskóla […]

Flottur útisigur í fyrsta leik

Kvennalið ÍBV vann laglegan sigur á Selfossi í fyrstu umferð Pepsídeildar kvenna en lokatölur urðu 1:2. Selfoss teflir fram mjög öflugu liði í sumar en mikil uppbygging hefur átt sér stað á Selfossi síðustu ár. En Eyjaliðið sýndi að það er enn sterkasta liðið á Suðurlandi og heldur montréttinum þar til liðin mætast á ný […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.