Vinnslustöðin hf. stefnir ríkinu vegna sérstaks veiðigjalds

Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum hefur stefnt fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins og krefst þess að fá endurgreitt sérstakt veiðigjald sem lagt var á sjávarútvegsfyrirtæki á fiskveiðiárinu 2012-2013 með lögum nr. 74/2012, alls um 516 milljónir króna. Vinnslustöðin unir álagningu almenns veiðigjalds á sama fiskveiðiári. �?að nam tæpum 200 milljónum króna. Málssóknin tekur því einungis til sérstaka […]

Fyrsti leikur sumarsins í dag

Karlalið ÍBV í knattspyrnu leikur fyrsta leik sumarsins í dag. Liðið sækir Fram heim í Laugardalinn en leikurinn fer reyndar ekki fram á þjóðarleikvanginum, heldur á gervigrasinu í Laugardal þar sem Laugardalsvöllur sjálfur er langt frá því að vera leikfær. Eins og svo oft áður er Eyjaliðið spurningamerki. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari ÍBV stýrir í […]

ÍBV stelpur í úrslitaleik í dag

4. flokkur kvenna í handboltanum hjá ÍBV er komið alla leið í úrslitaleik Íslandsmótsins. �?ær lögðu HK 1 að velli 26:21 í undanúrslitum í Eyjum 1. maí síðastliðinn en í úrslitaleik mæta þær Fram 1. Leikurinn hefst klukkan 11:30 og fer fram í Austurbergi. Stelpurnar þurfa auðvitað á stuðningi að halda í leiknum og óskuðu […]

KFS leikur opnunarleik knattspyrnusumarsins

Fyrsti knattspyrnuleikur sumarsins verður á Helgafellsvelli í dag kl. 13:00. KFS tekur þá á móti Gróttu af Seltjarnarnesi í Borgunar-bikarkeppninni. �?rátt fyrir regn og rok fer leikurinn fram og Tryggvi Guðmundsson, sem nú hefur gengið til liðs við KFS verður meðal leikmanna. (meira…)

Mylluhólsfjöri frestað til haustsins

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna er Mylluhólsfjörinu, sem vera átti á laugardagskvöldið frestað til haustsins. �?etta áttu að vera tónleikar þar sem saga Mylluhóls er rakin í tónum og tali. En það verður samt líf og fjör í Höllinni því Háaloftið verður opið eins og venjulega annað kvöld. Verður það opnað klukkan tíu og er ókeypis inn. […]

Leikur Fram og ÍBV sýndur beint á Stöð2 sport

Fyrsti leikur ÍBV í Pepsí deild karla í knattspyrnu verður næsta sunnudag kl. 16:00. Leikurinn fer fram á gervigrasvellinum í Laugardal í Reykjavík og verður sýndur beint á Stöð 2 sport. Fyrsti heimaleikur ÍBV verður síðan á fimmtudaginn í næstu viku þegar Stjarnan heimsækir Hásteinsvöll. Sá leikur hefst kl. 17.00. (meira…)

Árni Johnsen boðar til borgarafundar á kaffi Kró

Árni Johnsen, fyrrum alþingismaður, boðar til opins borgarafundar í dag, föstudag, klukkan 20:00 á Kaffi Kró. Fundarefnin eru samgöngumál, ferðaþjónustumál og fleira. �??�?g mun koma með mjög óvænta tillögu að skjótri og markvissri lausn samgangna,�?? sagði Árni í stuttu spjalli við Eyjafréttir. Hann bætti því við að fundurinn væri öllum opinn og hvatti hann Eyjamenn […]

Bestu stuðningsmenn landsins

Fá lið hér á landi hafa álíka stuðningsmenn og karlalið ÍBV í handbolta. �?að er ekki bara að um 900 manns hafi verið á leik ÍBV og Vals í dag, heldur létu stuðningsmenn liðsins vel í sér heyra, tóku virkan þátt í leiknum og hvöttu strákana áfram. Peyjarnir í Hvíta riddaranum hafa lyft stemmningunni á […]

Eyjamenn í úrslit Íslandsmótsins

ÍBV er komið í úrslit Íslandsmótsins í handbolta, í fyrsta sinn síðan veturinn 2004-2005 eftir sigur á Val í dag 28:23. Salurinn í Íþróttamiðstöðinni var troðinn af frábærum stuðningsmönnum ÍBV, staðið var báðu megin við völlinn en búið var að koma upp aukastæðum sunnan megin í salnum. Stuðningsmenn Eyjaliðsins voru frábærir í einu orði sagt. […]

Tryggvi með KFS í 4. deildinni í sumar

Knattspyrnumaðurinn Tryggvi Guðmundsson mun leika með KFS í 4. deildinni í sumar. Tryggvi er gífurlegur liðsstyrkur fyrir Hjalta Kristjánsson og félaga í KFS enda Tryggvi einn allra besti sóknarmaður íslenska boltans hin síðari ár og markahæsti leikmaður efstu deidar frá upphafi. Tryggvi mætir á sína fyrstu æfingu í dag hjá KFS klukkan 18:00 á Helgafellsvellinum […]

Allt klárt fyrir handboltatvennu ársins

Nú er allt að verða til reiðu fyrir handboltatvennu ársins, þ.e. þegar ÍBV tekurt á móti Val í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna og karla. Kvennalið félaganna leiða saman hesta sína klukkan 14:00 í dag en staðan í rimmunni er 2:1 fyrir Val. Vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram og dugir Val því sigur í […]

Hvað viljum við?

Með ódrepandi baráttuþreki og skýrum markmiðum um áratuga skeið tókst verkalýðshreyfingunni á Íslandi að leggja grunn að því velferðarsamfélagi sem við teljum svo sjálfsagt nú á dögum. �?að kostaði fórnir en smám saman þokaðist í rétta átt og fátækt þokaði fyrir betri hag og auknu félagslegu öryggi. �?essarar baráttu eigum við því ætíð að minnast. […]

Tekjur bæjarins dragast saman

Á fyrstu mánuðum þessa árs hefur orðið nokkur samdráttur í tekjum Vestmannaeyjabæjar þegar þær eru bornar saman við tekjur ársins 2013. �?annig drógust hafnargjöld saman um tæpar 29 milljónir á fyrstu þremur mánuðunum miðað við sama tíma í fyrra. Tekjusamdrátturinn í hafnargjöldum var rúm 33% á milli ára. �??Eins og gefur að skilja dragast aðrar […]

Ása í Bæ minnst á RUV

Á árinu 2014 eru liðin 100 ár frá fæðingu Ása í Bæ, tónlistarmanns og aflakóngs frá Vestmannaeyjum. Hann hét fullu nafni Ástgeir Kristinn �?lafsson, fæddist 27. febrúar 1914 og lést 1. maí 1985. Á dánardegi Ása mun Sighvatur Jónsson rifja upp sögu mannsins sem var best þekktur fyrir textagerð og lagasmíðar. �?að vita færri að […]

Skóladagur í Hamarsskóla í dag

Skóladagur GRV/Hamarsskóla verður miðvikudaginn 30. apríl kl. 16:30-20:00. Dagskráin hefst í Íþróttamiðstöðinni með tónleikum Litlu lúðrasveitarinnar kl. 16:30. Danssýningin hefst svo stundvíslega kl. 16:45. Að henni lokinni opnum við svo skólann þar sem verkefni nemenda verða til sýnis ásamt skemmtidagskrá um allt hús. Hlutaveltan sívinsæla og veitingasala nemenda í 5. bekk er einnig á sínum […]

Agnar Smári áfram í Eyjum

Handknattleiksmaðurinn Agnar Smári Jónsson, sem verið hefur í láni hjá ÍBV frá Val, verður áfram í herbúðum ÍBV næsta vetur. �?etta er kemur fram í Morgunblaðinu en þar segir að samningur milli ÍBV og Agnars sé svo að segja í höfn samkvæmt heimildum blaðsins og allar líkur á að hann verði áfram í Eyjum næsta […]

�?rslitaleikur á fimmtudaginn

Karlalið ÍBV tryggði sér oddaleik gegn Val með því að leggja Reykvíkinga að velli á heimavelli þeirra nú rétt í þessu en lokatölur urðu 26:27. Leikurinn var hin mesta skemmtun en liðin skiptust á að hafa forskotið og augljóst að þarna mætast tvö jöfn lið, enda mátti varla á milli sjá. Sérfræðingar hafa oft talað […]

Valur nær undirtökunum

ÍBV tapaði í dag fyrir Val í undanúrslitum Olísdeildar kvenna 24:19. Valur náði þar með forystu á nýjan leik í rimmu félaganna í undanúrslitunum og eru 2:1 yfir en vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram. Liðin mætast á nýjan leik í Eyjum á fimmtudaginn en vinni ÍBV þann leik, fer oddaleikur fram í […]

Framkvæmdadagur knattspyrnudeildar

Næstkomandi fimmtudag, 1. maí, fer fram framkvæmdadagur Knattspyrnudeildar ÍBV. Verkefni dagsins er að gera Hásteinsvöllinn okkar tilbúinn fyrir komandi sumar enda Pepsí deildin handan við hornið. Knattpyrnuráð deildarinnar hvetur stuðningsmenn ÍBV til að fjölmenna “á völlinn” en eins og orðatiltækið segir “margar hendur vinna létt verk” og hjálpa okkur í að gera Hásteinsvöll glæsilegasta völl […]

Jón Jónsson semur þjóðhátíðarlagið

Jón Jónsson semur þjóðhátíðarlagið í ár og ber það vinnuheitið Ljúft að vera til – lagið verður frumflutt í júní. �?etta kemur fram á Mbl.is. Einnig mun Jón koma fram með Fjallabræðrum og Sverri Bergmann á þjóðhátíðinni í Eyjum um verslunarmannahelgina, samkvæmt fréttatilkynningu. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.