Fyrsti knattspyrnuleikur sumarsins verður á Helgafellsvelli í dag kl. 13:00. KFS tekur þá á móti Gróttu af Seltjarnarnesi í Borgunar-bikarkeppninni. �?rátt fyrir regn og rok fer leikurinn fram og Tryggvi Guðmundsson, sem nú hefur gengið til liðs við KFS verður meðal leikmanna.