Fyrsti leikur sumarsins í dag
Karlalið ÍBV í knattspyrnu leikur fyrsta leik sumarsins í dag. Liðið sækir Fram heim í Laugardalinn en leikurinn fer reyndar ekki fram á þjóðarleikvanginum, heldur á gervigrasinu í Laugardal þar sem Laugardalsvöllur sjálfur er langt frá því að vera leikfær. Eins og svo oft áður er Eyjaliðið spurningamerki. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari ÍBV stýrir í fyrsta sinn félagsliði eftir sjö ára þjálfaraferil með íslenska kvennalandsliðið þar sem Sigurður Ragnar náði frábærum árangri með liðið. Nokkrar breytingar hafa orðið á ÍBV og sterkir leikmenn eins og David James, Hermann Hreiðarsson og Tonny Mawejje hafa horfið á braut en ÍBV hefur tryggt sér leikmenn eins og Abel Dhaira, Jökul I Elísabetarson, Jonathan Ricardo Glenn og Dominic Khori Adams. Fyrir utan markmannsskipti, þá er varnarlínan nánast óbreytt frá því í fyrra. Varnarleikurinn verður því sterkur en sem fyrr er spurning hvernig reiðir af í sóknarleiknum. Flestir fjölmiðlar spá ÍBV um miðja deild, 6. sætið er vinsælt í spá þeirra en ÍBV var einmitt í því sæti í árlegri spá forráðamanna deildarinnar sem birt var í síðustu viku. Fram er spáð á svipuðum slóðum, þannig að leikurinn í dag verður vafalaust erfiður.
Í það minnsta tveir leikmenn leika ekki með ÍBV í dag og báðir eru þeir varnarmenn. Matt Garner, vinstri bakvörður tekur út leikbann í fyrsta leiknum og Arnór Eyvar �?lafsson, hægri bakvörður er meiddur. �?á er óvíst með þátttöku Abel Dhaira en Eyjamenn tefla fram tveimur sterkum markvörðum í ár og líklegt er talið að Guðjón Orri Sigurjónsson muni byrja í markinu í dag.
Leikur ÍBV og Fram verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og verður leikurinn sýndur á breiðtjaldi á Háaloftinu. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og er annar tveggja opnunarleikja Íslandsmótsins.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.