�?rslitastund fyrir strákana

Karlalið ÍBV er komið með bakið upp að vegg og verður að vinna Val á útivelli í kvöld, ætli liðið sér að eiga möguleika á að komast í úrslit Íslandsmótsins. Liðin eigast við í kvöld klukkan 19:45 en vinni Valur, er tímabilinu lokið hjá Eyjamönnum. Valsmenn höfðu betur eftir framlengingu í dramatískum leik í Eyjum […]

Ferðatíðni stenst ekki loforð sem gefið var

Áhugahópur í Vestmannaeyjum um bættar samgöngur hefur ákveðið að opna fyrir skoðanakönnun um samgöngur milli lands og Eyja. Hópurinn sendir jafnframt áskorun á ríkisstjórn Íslands, þingmenn Suðurkjördæmis, bæjarstjórn Vestmannaeyja og sveitarstjórn Rangárþing eystra þar sem þess er krafist að lokið verði við framkvæmdir í Landeyjahöfn þannig að höfnin virki eins og lofað var þegar framkvæmdir […]

Friður og spekt með undantekningum

�?að var öllu rólegra hjá lögreglu í liðinni viku en í vikunni á undan. Skemmtanahald helgarinnar gekk með ágætum en þó var eitthvað um útköll á skemmtistaði bæjarins án þess þó að um alvarleg mál hafi verið um að ræða. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða frá heimahúsum og þá þurfti lögregla að aðstoða nokkra […]

Hópferð á leikina gegn Val á morgun

Handknattleiksdeild ÍBV, í samstarfi við Eimskip, býður upp á hópferð á leiki meistaraflokks karla og kvenna á morgun þriðjudag. ÍBV sækir þá Val heim á Hlíðarenda en karlaliðið er með bakið upp við vegg, eru 2:1 undir og tap þýðir að tímabilinu er lokið. Stelpurnar jöfnuðu hins vegar metin í sinni rimmu, 1:1 með mögnuðum […]

Skóladagur í Hamarsskóla á miðvikudag

Skóladagur GRV/Hamarsskóla verður miðvikudaginn 30. apríl kl. 16:30-20:00. Dagskráin hefst í Íþróttamiðstöðinni með tónleikum Litlu lúðrasveitarinnar kl. 16:30. Danssýningin hefst svo stundvíslega kl. 16:45. Að henni lokinni opnum við svo skólann þar sem verkefni nemenda verða til sýnis ásamt skemmtidagskrá um allt hús. Hlutaveltan sívinsæla og veitingasala nemenda í 5. bekk er einnig á sínum […]

Fjárfesting til framtíðar

Í Vestmannaeyjum erum við lánsöm. Lánsöm að boðið sé upp á hinar ýmsu íþróttir, tónlistanám og annað æskulýðsstarf fyrir börnin okkar. �?ví skipulagt félags- og tómstundastarf er ekki aðeins mikilvægur vettvangur fyrir afþreyingu ungs fólks heldur er það talið ein af grunnstoðum uppbyggilegrar þátttöku þeirra í samfélaginu, þar sem þau læra að líta á sig […]

Stöngin út!

Eyjamenn eru komnir með bakið upp að vegg eftir tap gegn Val í undanúrslitum Íslandsmótsins í kvöld. Leikurinn var í járnum og æsispennandi enda fór svo að þegar venjulegum leiktíma var lokið, var staðan jöfn 23:23. �?ví varð að framlengja og þar voru Valsmenn sterkari enda höfðu þeir að lokum sigur, 26:25. Eyjamenn fóru illa […]

Frábær leikur hjá stelpunum

Kvennalið ÍBV lék sennilega sinn besta leik í vetur þegar liðið lagði Val að velli í annarri viðureign liðanna. Lokatölur urðu 23:17 en staðan í hálfleik var 9:9. ÍBV varð fyrir miklu áfalli eftir að venjulegum leiktíma lauk í fyrri hálfleik en þá fékk Vera Lopes að líta rauða spjaldið, sem þótti mjög vafasamur dómur […]

Skálmöld, Fjallabræður, Jónas Sig og Baggalútur á �?jóðhátíð

Skálmöld, Fjallabræður ásamt Sverri Bergman, Jónas Sig og Baggalútur verða á �?jóðhátíð 2014. �?etta var tilkynnt í dag en áður hafði Mammút, Kaleo, Skítamórall og Quarashi verið kynnt til leiks. �?jóðhátíð á 140 ára afmæli í ár og hefur þjóðhátíðarnefnd lofað sérlega veglegri dagskrá af því tilefni. Forsala miða er á Dalurinn.is. (meira…)

Spilaði leik sama dag og faðir hans lést

Fyrirliði ÍBV í knattspyrnu, Eiður Aron Sigurbjörnsson er í ítarlegu viðtali á vefnum Fótbolti.net. Viðtalið er tekið í tilefni spá vefsins fyrir sumarið en Fótbolti.net spáir ÍBV í 6. sæti. Eyjafréttir fengu leyfi til að birta viðtalið í heild sinni og má lesa það hér að neðan. Nafn: Eiður Aron Sigurbjörnsson Aldur: 24 ára Staða: […]

Gleðilegt sumar

Lundinn er að setjast upp í kvöld, sem þýðir að þar með er komið sumar hjá mér, en þetta er í fyrsta skiptið sem það hittir nákvæmlega á sumardaginn fyrsta, en í öll þessi ár sem ég hef fylgst með komu lundans, hefur hann aldrei komið svona seint en t.d. bæði í fyrra og hitt […]

Lundinn sestur upp í Eyjum

Hilmar Kristjánsson hafði samband við ritstjórn í gærkvöldi og tilkynnti að lundinn væri sestur upp. Hilmar sá lundann á sveimi bæði við Klifið og Heimaklett en lundinn er frekar seinna á ferðinni nú en yfirleitt áður. Georg Eiður Arnarson hefur fylgst lengur með lundakomu en elstu menn muna en hann skrifar á bloggsíðu sína að […]

Skemmtileg myndbrot úr Eyjum frá miðri síðustu öld

Á vefnum Youtube er hægt að finna margar gersemar. Meðal þeirra eru þau tvö myndbönd sem birtast með þessari frétt. Í öðru myndbandinu, hér að ofan er sýnt frá stangveiðimóti árið 1961. �?ar er sagt frá því að í keppninni hafi bæði verið innlendir og erlendir veiðimenn en sjón er sögu ríkari. Í hinu myndbandinu, […]

Valsmenn búnir að jafna metin

Eyjamenn náðu sér ekki á strik í dag í öðrum leik sínum gegn Val í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta. Leikur liðanna fór fram í Reykjavík og skemmst er frá því að segja að Valur hafði betur 28:24 eftir að staðan í hálfleik var 15:13. �?að góða við leikinn er hins vegar sú staðreynd að […]

Valur með öruggan sigur

ÍBV tapaði fyrir Val í dag í undanúrslitum Olísdeildar kvenna en liðin áttust við á heimavelli Hlíðarendaliðsins í fyrsta leik undanúrslitanna. Lokatölur urðu 21:17 en staðan í hálfleik var 9:7. ÍBV byrjaði mjög vel í leiknum, komust tveimur mörkum yfir strax í byrjun en í stöðunni 3:5 hrökk allt í baklás. Sóknarleikur liðsins varð nánast […]

Gíslína bæjarlistamaður Vestmannaeyja

Gíslína Dögg Bjarkadóttir, myndlistamaður er bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2014. �?tnefningin fór fram í Kviku í dag en Gíslína Dögg hlýtur starfslaun bæjarlistamanns næsta árið. Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs Vestmannaeyja tilkynnti um valið en í máli hennar kom m.a. fram að Gíslína Dögg sé textíl- og fatahönnuður, auk þess sem hún hefur lagt stund á myndlist og […]

Fjölbreytt dagskrá á sumardaginn fyrsta

Fyrsti dagur sumars er á morgun, fimmtudaginn 24. apríl. Sumrinu verður fagnað með hátíðahöldum í Eyjum eins og víða annarsstaðar en dagskrá hefst klukkan 11:00 í Menningarhúsinu Kviku við Heiðarveg, þar sem Bæjarlistamaður Vestmannaeyja verður útnefndur. Skólalúðrasveitin leikur við athöfnina. Skrúðganga hefst svo klukkan 13:00 en safnast verður saman við Safnahús og gengið fylktu liði, […]

Leifur í úrvalsliði 1. deildar

Eyjamaðurinn Leifur Jóhannesson sem lék með �?rótti í 1. deildinni í handboltanum í vetur, er í úrvalsliði 1. deildar sem þjálfarar í deildinni völdu. �?að er vefurinn Fimmeinn.is sem stóð fyrir kosningunni. Leifur deilir reyndar stöðu hægri skyttu með fyrrum atvinnumanninum og landsliðsmanninum Einari Hólmgeirssyni en þeir urðu hnífjafnir í kosningunni. Leifur fór fyrir liði […]

Stefnumót við frambjóðendur

Á morgun, sumardaginn fyrsta, kl. 14.00 verður málefnavinna Sjálfstæðismanna í Ásgarði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Slíkur háttur hefur verið á að bjóða þeim sem áhuga hafa, að áhrif á stefnuskrá framboðsins með því að taka þátt í hugmyndastarfinu. �?etta er því kjörið tækifæri til þess að móta samfélagið í samvinnu við frambjóðendur og koma sínum […]

Meiri uppgræðsla við Landeyjahöfn

Til stendur að færa flóðvarnargarð við Landeyjahöfn nær sjónum svo unnt verði að græða upp stærra svæði og um leið draga úr sandfoki yfir hafnarsvæðið og út í höfnina. �?etta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar segir að flóðvarnargarðurinn hafi upphaflega verið byggður á sjávarkambinum miðjum og grætt upp innan hans. �??Sandur er […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.