Meiri uppgræðsla við Landeyjahöfn
Til stendur að færa flóðvarnargarð við Landeyjahöfn nær sjónum svo unnt verði að græða upp stærra svæði og um leið draga úr sandfoki yfir hafnarsvæðið og út í höfnina. �?etta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar segir að flóðvarnargarðurinn hafi upphaflega verið byggður á sjávarkambinum miðjum og grætt upp innan hans. �??Sandur er utan garðsins og fýkur stundum yfir bíla og fólk sem á leið um hafnarsvæðið. �?á er talið að töluvert hafi fokið í höfnina, sérstaklega fyrstu tvö árin eftir að hún varð gerð. �?egar sjónum hefur verið bægt frá verður unnt að hefjast handa við uppgræðslu,�?? segir í Morgunblaðinu.
Áformað er að bjóða út byggingu nýja flóðvarnargarðsins ásamt lagningu vegar út á eystri hafnargarðinn en til þess að hægt verði að koma veginum fyrir, verður garðurinn breikkaður. Eftir það verður hægt að keyra út á báða garðana.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.