Fimm marka sigur á Selfossi

ÍBV lagði Selfoss að velli í dag 24:29 í Olísdeild kvenna en liðin mættust á Selfossi. Selfoss er með lið í úrvalsdeild annað tímabilið eftir áralanga fjarveru og virðist uppbyggingastarfið á Selfossi vera skila sér. Í það minnsta stóð Selfossliðið lengi vel í ÍBV en Eyjakonur gáfu í undir lok leiks og unnu að lokum […]

Hvar liggur vandinn?

Hér eru nokkur atriði sem vert er að velta upp vegna stöðu Landeyjarhafnar í dag og sýnilegra vandamála til nokkuð langrar framtíðar. Hvað er vandamálið við að ekki skuli vera hægt að halda uppi reglulegum siglingum til Landeyjarhafnar eins og vonir íbúa Vestmannaeyja voru við byggingu hafnarinnar þar sem hún er í dag. (meira…)

Skurðstofan mönnuð fram í nóvember

Skurðstofan á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, verður mönnuð fram í nóvember. Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra hefur falið forstjóra stofnunarinnar, Gunnari K. Gunnarssyni, að tryggja mönnun skurðstofu þar til samstarfshópur, sem settur var saman til að fara yfir rekstur stofnunarinnar, hefur skilað tillögum sínum. (meira…)

�?víst með Eið Aron

Óvíst er hvort Eiður Aron Sigurbjörnsson verði áfram í herbúðum ÍBV en hann var fyrirliði liðsins í sumar. Eiður Aron var í láni frá sænska félaginu Örebro en hann á eitt ár eftir af samningi þar. Eiður fékk ekkert að spila hjá Örebro í fyrra og hann vill fara aftur til ÍBV á láni ef […]

Nýr lampi kostar 9 milljónir

Fyrir um tveimur vikum eyðilagðist lampinn í sneiðmynda­tækinu á Sjúkrahúsinu. Er það mikið áfall því frá því tækið var tekið í notkun í september 2007 hefur um 800 sjúklingum verið rennt í gegn að meðaltali á ári. Á meðan tækið er bilað þarf að senda fólk sem þarf að komast í sneiðmyndatöku til Reykjavíkur. (meira…)

Fársjúk heilbrigðisstofnun

Nú er svo komið að ég get ekki lengur orða bundist. �?g er að springa, ekki bara vegna þess að ég er komin 36 vikur á leið og mér finnst ég bókstaflega geta sprungið á hverjum degi en aðallega af því að ég er að springa úr reiði og vonbrigðum. Reiði í garð þeirra frambjóðenda […]

Tengivinna hjá Landsneti á nýjum sæstreng

Vegna tengivinnu hjá Landsneti á nýjum sæstreng á milli lands og Eyja verður að framleiða rafmagn með ljósavélum HS Veitna laugardaginn 5.okt. frá kl. 09:00 til kl. 22:00. Á þessu tímabili eru rafmagnsnotendur hvattir til að spara rafmagn eins og þeir mögulega geta. Rafmagnssparnaður gæti m.a. falist í því að nota ekki orkufrek rafmagnstæki eins […]

Kanna á kosti og galla þess að bærinn reki alla heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum

Kristján Júlíusson, heilbrigðismálaráðherra var í Vestmannaeyjum í morgun þar sem hann kynnti starfsfólki Heilbrigðisstofnunar viðbrögð ráðuneytisins og bæjarstjórnar Vestmannaeyja til að mæta niðurskurði í rekstri stofnunarinnar. Kom fram að heilbrigðisráðherra hefur í samstarfi við bæjarstjórn Vestmannaeyja skipað samstarfshóp um heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum. (meira…)

�?jóðhátíð sneri við þróuninni

Það má segja að leikur ÍBV og FH á miðri Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hafi rifið upp meðalfjölda áhorfenda á leikjum í Pepsi-deild karla í sumar og bjargað því að meðalfjöldinn jókst nokkuð frá síðasta ári, eða um 23 áhorfendur. Meðalfjöldinn hafði minnkað síðustu tvö tímabil og nam 1.034 áhorfendum í fyrra en 1.057 í ár. […]

Enn skorið niður hjá HSV

Framlög til Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, HSV lækka um 85,3 milljónir á milli ára, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins. Lætur nærri að niðurskurður til stofnunarinnar á milli ára sé um 11%, úr 750 milljónum í 664,9 milljónir. Samkvæmt bréfi ráðherra til sveitastjórna á Suðurlandi, er stefnt að því að sameina heilbrigðisstofnanir í landshlutanum en þetta kemur […]

Eyjakvöldin halda áfram á fimmtudaginn

Hin geysivinsælu Eyjakvöld halda áfram næstkomandi fimmtudag en sem fyrr verður komið saman á Kaffi Kró klukkan 21:00. Eyjakvöldin hafa slegið í gegn en þar koma nokkrir tónlistarmenn saman, spila og syngja Eyjalögin þannig að viðstaddir geta tekið undir með tónlistarmönnunum. (meira…)

Heilbrigðisstofnanir sameinaðar á Suðurlandi

Heilbrigðisráðherra sendi sveitarstjórnum á Suðurlandi bréf í síðustu viku þar sem kynnt eru áform um að Heilbrigðisstofnun Suðurlands sameinist Heilbrigðisstofnunum Vestmannaeyja og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands. Þetta kemur fram á vefnum www.sunnlenska.is á Selfossi. (meira…)

Af búskap suður á Eyju

Eigendur hestabúgarðsins í Lyngfelli fóru um síðustu helgi í útreiðatúr með nokkrum Vestmannaeyingum. Halldór Halldórsson var með í för og tók þetta myndband úr útreiðatúrnum. Hann brá sér í líka í fjárhúsin suður á Eyju myndaði það sem þar bar fyrir augu. (meira…)

Tíðinda að vænta síðar í vikunni

Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að tíðinda sé að vænta af málefnum Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja síðar í vikunni. Bæjarstjórinn hefur fundað með heilbrigðisráðherra og hans fólki síðustu daga og vikur. „Tími ráðherra og hans fólks hefur eðlilega farið mikið í ástandið á Landspítalanum. Engu að síður bindum við vonir við að núna í vikunni verði hægt að […]

Lúðrasveit Vm og Fjallabræður saman á ný í �?orlákshöfn

Lúðrasveit Vestmannaeyja tekur þátt í 22. Landsmóti SÍL (Sambands íslenskra lúðrasveita) í Þorlákshöfn um næstu helgi. Lúðrasveit Vestmannaeyja er ein af stofnfélögunum SÍL og var Oddgeir Kristjánsson m.a. heiðursfélagi SÍL og hefur sveitin tekið þátt í flestum landsmótum sem haldin hafa verið. (meira…)

�?kumenn athugið ljósabúnaðinn

Eins og undanfarnar vikur þá var liðin vika með þeim rólegri hjá lögreglu. Þrátt fyrir að fjöldi manns hafi verið að skemmta sér um helgina fór skemmtanahaldið fram með ágætum og lítið um að lögregla hafi verið kölluð á veitingastaði bæjarins. (meira…)

Hjörtur hættir um áramót

Hjörtur Kristjánsson, sérfræðingur í lyf- og hjartalækningum hjá Heilbrigðistofnun Vestmannaeyja, hefur sagt upp störfum hjá stofnuninni og hættir um áramót. Hann er fjórði læknirinn sem segir upp síðasta hálfa árið. Karl Björnsson hættir um áramót, Smári Steingrímsson skurðlæknir hættir eftir mánuð og Einar Jónsson er hættur. Bæði Einar og Karl eru heimilislæknar en Hjörtur er […]

Grunnmenntaskólinn góður undirbúningur

Grunnmenntaskólinn hentar þeim sem vilja styrkja sig í grunngreinum íslensku, stærðfræði, ensku og tölvum. Lögð er áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu, umræður og rökræður í stað hefðbundinna prófa. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi skólann til styttingar náms […]

Hafa gefið 22,3 millj­ónir á átta árum

Kiwanismenn hafa verið mjög gjafmildir í gegnum árin og hafa sinnt sínu samfélagi vel. Á síðasta félagsfundi Kiwanismanna kom fram að á síðustu átta árum hefur Kiwanisklúbburinn Helgafell í ­Vestmannaeyjum styrkt félög, stofn­anir og einstaklinga í bæjarfélaginu fyrir 22,3 milljónir. (meira…)

Shaneka Gordon og Matt Garner valin best

Í gærkvöldi fór fram lokahóf ÍBV íþróttafélags en hófið fór fram í Golfskálanum að þessu sinni. Hápunktur lokahófsins var þegar tilkynnt var um verðlaun leikmanna en að þessu sinni voru það þau Matt Garner og Shaneka Gordon sem voru valin best hjá ÍBV í sumar og eru þau bæði vel að titlinum komin. Sabrína Lind […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.