Stelpurnar héldu uppi merki ÍBV

Kvennalið ÍBV lagði Fram að velli í dag 25:20, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12:9 ÍBV í vil. Eyjakonur höfðu undirtökin í fyrri hálfleik og enduðu með góðum spretti sem skilaði liðinu þriggja marka forystu. Heimaliðið tók svo öll völd á vellinum í upphafi síðari hálfleiks en gestirnir úr Fram neituðu að gefast […]

Fullt af bolta í dag

Það verður í nógu að snúast fyrir boltaunnendur í Vestmannaeyjum í dag en þrjú af fimm meistaraflokksliðum spila í dag. Kvennalið ÍBV ríður á vaðið klukkan 13:30 þegar liðið tekur á móti Íslandsmeisturum Fram en liðin háðu harða baráttu í undanúrslitum Íslandsmótsins í fyrra, þar sem Fram hafði að lokum betur 3:1. Hálftíma síðar, eða […]

Eyjapeyji vann Elite keppnina

17 ára gamall Eyjapeyji, Hafþór Valsson sigraði í Elite fyrirsætukeppninni sem fram fór í Kringlunni í gær. Keppt var bæði í kvenna- og karlaflokki en Hafþór skellti sér yfir á meginlandið til að komast í opnar prufur fyrir keppnina í Kringlunni. Sem sigurvegari fer hann til Elite í London þar sem hann mun dvelja, fara […]

Almenn ánægja með akstursþjónustu Vestmannaeyjabæjar

Fundi fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæajr, lagði framkvæmdastjóri ráðsins til að haldið verði áfram að reka akstursþjónstu fyrir fatlaða og aldraða, eins og gert er í dag. Vestmannaeyjabær sinnir sjálfur allri akstursþjónustu með starfsmanni og sérútbúinni bifreið. Almenn ánægja er með þjónustuna, kostnaður er skv. áætlun og mun hagkvæmari en þegar þjónustan var í höndum verktaka. […]

Nytsemi kýrinnar

Kýrin er húsdýr, en hana má líka finna fyrir utan húsið. Og hún býr oftast í sveitinni en kemur líka inn í bæinn, en bara þegar hún á að deyja. En það ákveður hún e…kki sjálf. Kýrin hefur sjö hliðar, efri hliðina, neðri hliðina, fremri hliðina, aftari hliðina, eina hliðina, hina hliðina og innri hliðina. […]

Gefur út kynningarbækling um Suðurland

Á hverju hausti í tengslum við Vest Norden kaupstefnuna gefur Markaðsstofa Suðurlands út veglegan kynningarbækling um Suðurland þar sem þjónusta fyrirtækja og sveitarfélaga í landshlutanum er kynnt ásamt áhugaverðum stöðum. Núna eru 14 sveitarfélög og rúmlega 160 fyrirtæki á Suðurlandi aðilar að markaðsstofunni. Bæklingurinn er gefinn út í 35.000 eintökum og er honum dreift á […]

Nethamar þjónustar Chevrolet eigendur

Bílabúð Benna heimsótti Vestmannaeyjar, helgina 21. og 22. september, með sýningu á Chevrolet og Porsche bílunum. Við sama tækifæri var Bíla – og vélaverkstæðið Nethamar boðið velkomið í hóp viðurkennda þjónustuaðila Chevrolet á landsbyggðinni. Nethamar var stofnað árið 1993 og rekur félagið netaverkstæði, vélaverkstæði og almennt bílaverkstæði. (meira…)

Stefnir í besta Lundaball sögunnar

Hið árlega Lundaball fer fram á laugardaginn og er það í höndum Brandara að þessu sinni. „Þar sem tveir Brandarar koma saman, þar er gaman,“ sögðu þeir Grímur Guðnason og Ólafur Guðmundsson, félagar í veiðifélagi Brandsins. (meira…)

Lítið að frétta en allt á fullu

Svo gæti farið að aðeins tveir heilsu­gæslulæknar verði starf­andi við Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, í stað fjögurra áður. Karl Björnsson, hættir um áramót en Einar Jónsson hætti fyrr á árinu og hefur gengið illa að fylla skarð Einars. Þessar fréttir bæt­ast við lokun skurðstofu HSVE. (meira…)

James kveður ÍBV fyrir lokaleikinn

David James verður ekki í marki Eyjamanna þegar þeir taka á móti �?órsurum í lokaumferð Pepsi-deildar karla í fótboltanum á laugardaginn. James fór meiddur af velli eftir fyrri hálfeikinn gegn Val á Hásteinsvelli á dögunum. Guðjón Orri Sigurjónsson kom í hans stað og átti frábæran síðari hálfleik, og spilaði síðan allan leikinn gegn Keflavík í […]

Flottur �??kallinn�??

Út er kominn nýr hljómdiskur með Hljómsveit Stefáns P. sem ber heitið “Flottur Kallinn”. Á honum eru 18 lög – þar af 12 sem voru hljóðrituð á árunum 1983 – 1985. Á þessum árum skipuðu hljómsveitina auk Stefáns P. Ólafur Bachmann trommuleikari og Sigurður Björgvinsson bassaleiki. (meira…)

Fyrir stóra menn

Góður og gegn Eyjamaður Jóhann Ingi Davíðsson sendi okkur þennan póst: „Þar sem ég er nú Eyjamaður í húð og hár, datt mér í hug að senda ykkur þennan póst þar sem jú einn og einn stór Eyjamaður er til 🙂 En við hjá Dressmann (þar sem ég vinn) erum að opna búð í Smáralind […]

Enn kosið um hótel

Svo virðist sem hugmynd um 120 herbergja hótel í Vestmanna­eyj­um sé enn inni í myndinni ef marka má auglýsingu í Eyjafrétt­um í dag. Í henni kemur fram að þró­unaraðili hafi lagt fram tillögu um byggingu 120 herbergja hótel­bygg­ingar í Vest­mannaeyjum og að bæja­ryfirvöld hafi valið fimm staði sem þykja koma til greina fyrir hótelið. Íbúar […]

Hart tekið á kynþáttafordómum

„Í ljósi umræðu sem skapast hefur um atvik sem átti sér stað í leik Keflavíkur og ÍBV í Pepsi-deild karla þá vill Knattspyrnudeild Keflavíkur koma því á framfæri að kynþáttafordómar verða aldrei umbornir hjá félaginu. Komi það í ljós að stuðningsmaður félagsins hafi haft uppi ósæmandi orðbragð sem beindist að leikmanni ÍBV verður tekið á […]

Gat verið – Eyjamenn!

Kristján Hjálmarsson, blaðamaður á Fréttablaðinu skrifar í dag pistil um tónleika hljómsveitarinnar Ný dönsk á laugardaginn í Hörpu. Kristján mætti á seinni tónleika kvöldsins og eðli máli samkvæmt var glatt á hjalla. Kristján talar sérstaklega um fólkið í fremstu röðinni. „Fremsta röðin réð heldur ekki við sig, trylltist eiginlega af gleði, þegar Iður – Þjóðhátíðarlagið […]

Lundasumarið 2013

Lundaballið er um næstu helgi og því rétt að gera upp sumarið. Mjög merkilegt lundasumar að baki, en þó fyrst og fremst gríðarleg vonbrigði með varpið, en í þessum skrifuðum orðum eru komnar 25 pysjur á sædýrasafnið, sem þýðir að 2013 er fimmta árið af síðustu sjö þar sem varpið misferst nánast alveg. Þó verður […]

Kynþáttafordómar í Keflavík?

Svo virðist sem áhorfandi á viðureign Keflavíkur og ÍBV í Pepsi-deild karla um liðna helgi hafi látið ófögur orð falla í garð leikmanns Eyjamanna. Þetta kemur fram á Vísi.is í dag en ummælin náðust á myndband sem má sjá hér að neðan. Mawejje braut á Arnóri Ingva Traustasyni, leikmanni Keflavíkur og gera þurfti hlé á […]

Litla Gunna og litli Siggi Áss

Enn og aftur kemur athyglisverð grein frá Sigurði Áss Grétarssyni um Landeyjarhöfn. Nú skal klára ósköpin. Fyrst byggjum við alltof litla höfn, svo byggjum við alltof þrönga og næstum óhæfa aðstöðu til að taka á móti farþegum (hús og þar fyrir utan) og nú skal halda áfram og klára dæmið með alltof lítilli ferju. Það […]

Stoppdagar Herjólfs

Tvær síðustu ferðir Herjólfs í dag og allar ferðir Herjólfs á morgun, falla niður vegna viðhaldsvinnu um borð. Að ýmsu þarf að dytta í skipinu, sem ekki vinnst tími til þegar siglt er alla daga. Á fimmudagsmorgun kl. 8.00 fer Herjólfur síðan aftur í sína rútínusiglingu til Landeyjahafnar samkvæmt áætlun. (meira…)

Andri fær gullpening

Eins og knattspyrnuunnendur vita, þá fagnaði KR Íslandsmeistaratitli á sunnudaginn. Einn Eyjamaður er í leikmannahópi KR-inga, Andri Ólafsson, fyrrum fyrirliði ÍBV. Andri varð hins vegar fyrir meiðslum á undirbúningstímabilinu sem hafa haldið honum utan vallar í allt sumar. Andri spilaði því ekki eina einustu mínútu með Íslandsmeisturunum í Íslandsmótinu en fær engu að síður gullpening […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.