Sjálfstæðismenn í Eyjum taka undir með VG á Norðurlandi

Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum taka undir óánægju svæðisfélaga Vinstri grænna í Húnavatnssýslum og Skagafirði með niðurskurð á landsbyggðinni. Segir í ályktun frá fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum að áform um niðurskurð á landsbyggðinni séu langt umfram sem áður hafði verið boðað. (meira…)
Niðurstaða fengin varðandi skipalyftuna

Framkvæmda- og hafnarráð hélt fund sl. föstudag í fundarherbergi Siglingastofnunar í Kópavogi. Á fundinum fóru Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hafnarsviðs, og Jón Bernódusson skipaverkfræðingur hjá Siglingastofnun, yfir niðurstöður mælinga og úttektar Siglingastofnunar á notagildi leiðar tvö varðandi endurbætur á upptökumannvirkjum Vestmannaeyjahafnar. Í máli þeirra kom fram að leið tvö er fullkomlega fær til að lyfta […]
�?skuðu eftir undanþágu en fengu ekki

Valgeir Arnórsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Vestmannaeyja segir í fréttatilkynningu sem hann sendi út rétt í þessu að Flugfélagið hafi sótt um undanþágu frá nýjum reglum um endurnýjun lofthæfisskirteina flugvéla, en ekki fengið. Hann segist líta málið alvarlegum augum og harmar að þessi staða hafi komið upp en vonast til að málið leysist á næstu dögum. Fréttatilkynninguna […]
Á leið fyrir dóm

Nú er liðið ár frá hruni íslenska bankakerfisins og þjóðin stendur frammi fyrir gríðarlegum fjárhagsvanda og sér ekki enn fyrir hvernig hann verður leystur. Drífandi, stéttarfélag hefur ekki verið samstíga forystu ASÍ varðandi kjaramál og bendir allt til þess að málarekstur verði vegna þess fyrir dómstólum. Stjórn Drífanda er mjög ósátt við samkomulag sem ASÍ […]
Atli Heimisson hefur skorað 13 mörk í 13 síðustu leikjum Asker

Atli Heimisson hefur farið mikinn með Asker í norsku 2.deildinni að undanförnu en hann hefur skorað þrettán mörk í síðustu þrettán leikjum liðsins. Atli var valinn besti leikmaður 1.deildar á Íslandi í fyrra en þá hjálpaði hann Eyjamönnum upp í úrvalsdeild. (meira…)
Ráðuneyti vill svör um sjúkraflug

Allt flug Flugfélags Vestmannaeyja hefur legið niðri í rúma viku þar sem engin af þremur vélum félagsins hefur gilt lofthæfisskírteini. Heilbrigðisráðuneytið fór í morgun fram á skrifleg svör frá Flugfélagi Vestmannaeyja um hvernig félagið ætli sér að efna samning um sjúkraflug milli lands og eyja. (meira…)
Tryggvi Guðmunds í ÍBV?

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta hefur Tryggvi Guðmundsson áhuga á að snúa aftur til ÍBV eftir 12 ára fjarveru en Tryggvi fór frá ÍBV haustið 1997 og hélt í atvinnumennsku. Eftir að hann sneri heim úr atvinnumennsku 2005, hefur hann leikið með Íslandsmeisturum FH við afar góðan orðstír en hefur þurft að verma tréverkið meira en góðu […]
Golfvöllurinn í Eyjum er �??must visit�??

Peter Walton, forseti og stofnandi IAGTO og Giles Greenwood, einn starfsmanna hans komu til Íslands í sumar og léku golf á mörgum golfvöllum hér á landi. Tilefnið var að taka út Ísland sem golferðastað og það að Golf Iceland samtökin hafa ákveðið að ganga í IAGTO samtökin en þau ráða yfir 80% af sölu allra […]
Engin sjúkraflugvél í Eyjum

Flugfélag Vestmannaeyja fær greitt fyrir sjúkraflug frá Eyjum. Vandi félagsins er aftur á móti sá að það hefur enga flugvél sem má fljúga. Sem stendur eru Vestmannaeyingar því án sjúkraflugvélar og af því hefur Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestamannaeyjar þungar áhyggjur. (meira…)
Hvað má betur fara? 556 milljarðar í útgjöld

Á vefsíðu Eyverjar, ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum má finna nokkuð athyglisverða umfjöllun um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Þar eru teknir fyrir nokkrir liðir sem ungir Sjálfstæðismenn í Eyjum setja spurningamerki við og bera jafnvel saman við úthlutun ríkisstofnanna í Eyjum. Greinina má lesa í heild sinni hér. (meira…)
Prjónakaffi á Volcano í kvöld

Í kvöld kl 20:00 ætla Prjónakaffiskonur og -karlar að hittast á Volcano Café í fyrsta Prjónakaffinu í vetur. Væntanlega verður tekið í nokkra prjóna og skorað á bæði konur og karla að láta sjá sig. Allir velkomnir með prjóna, hekl eða útsaum, nú eða bara til að spjalla, fá ráðleggingar, hugmyndir og skiptast á uppskriftum. […]
Fimm af tíu þingmönnum mættu

Fimm af tíu þingmönnum Suðurkjördæmis mættu á fund sem bæjarstjórn Vestmannaeyja kallaði til nú í morgun vegna niðurskurðarhugmynda ríkisstjórnarinnar. Enginn þingmaður Samfylkingarinnar sá sér fært að mæta og þingmaður Hreyfingarinnar var ekki viðstaddur fundinn. Allir þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins sátu hins vegar fundinn, einn frá Framsókn og eini þingmaður VG. Fundarmenn lýstu yfir miklum áhyggjum af […]
Engar náttúruhamfarir eins dýrar og Vestmannaeyjagosið

Engar náttúruhamfarir hafa kostað íslenska þjóðarbúið eins mikið og Vestmannaeyjagosið, eða um 29 milljarða framreiknað til núvirðis eða 6% af vergri landframleiðslu þess tíma. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu umhverfisráðuneytisins tekin verður fyrir á Umhverfisþingi í vikunni. (meira…)
Fanndís kosin efnilegust

Eyjastúlkan Fanndís Friðriksdóttir, sem leikið hefur með Breiðablik undanfarin ár, var í gær kosin efnilegasti leikmaður Pepsídeildar kvenna. Fanndís hefur vakið verðskuldaða athygli í sumar fyrir vasklega framgöngu með liði sínu enda var hún valin í A-landsliðs Íslands sem tók þátt í lokakeppni EM. (meira…)
Eyjamönnum spáð fimmta og þriðja neðsta sæti 1. deildar

Svo virðist sem þjálfarar og fyrirliðar í 1. deild karla í handbolta hafi ekki mikla trú á ÍBV í vetur en í árlegri spá fyrir tímabilið var ÍBV spáð fimmta og þriðja neðsta sæti deildarinnar. Afturelding er spáð sigri í deildinni, Selfyssingum öðru sæti og Víkingum því þriðja. (meira…)
Heiðruðu Íslandsmeistarana 1979

Á Sumarlokahófi ÍBV-íþróttafélags heiðraði félagið fyrstu Íslandsmeistara ÍBV í karlaknattspyrnu en árið 1979 fögnuðu Eyjamenn sigri á Íslandsmótinu. Stór hluti hópsins, bæði leikmenn og forráðamenn liðsins eru búsettir í Eyjum en nokkrir af þeim brottfluttu komu á lokahófið. Forráðamenn ÍBV afhentu hverjum og einum innrammaða mynd sem tekin var haustið 1979 þegar titillinn var í […]
ÍBV spilar áfram í Hummel búningum

ÍBV-íþróttafélag og sportvörubúðin Axel Ó. endurnýjuðu á föstudaginn samstarfssamning sinn en Axel Ó. útvegar félaginu Hummel búninga eins og lið félagsins spiluðu í, í sumar. Nýi samningurinn gildir til 2012 en ný lína í ÍBV-búningum var kynnt við undirskrift samningsins. Það voru þeir Tryggvi Már Sæmundsson, framkvæmdastjóri ÍBV og Magnús Steindórsson, eigandi Axel Ó. sem […]
Fimmtán knattspyrnukonur skrifuðu undir hjá ÍBV

Fyrir lokahóf ÍBV á föstudaginn hélt kvennaráð ÍBV lítið hóf í Týsheimilinu þar sem leikmenn og þeir sem að liðinu koma, gerðu sér glaðan dag. Við það tækifæri skrifuðu fimmtán leikmenn undir tveggja ára samning hjá félaginu og bendir því allt til þess að kvennalið ÍBV verði að mestu leyti óbreytt næsta sumar. (meira…)
Makríll gefur milljarða

Sviptingar hafa verið hjá útgerðum uppsjávarskipa undanfarin ár. Makríll sem áður var flækingur á Íslandsmiðum er nú orðinn einn mesti nytjafiskurinn og gulldeplan bjargaði miklu í vetur. Veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld hafa gengið vel í ár, en það sama verður ekki sagt um loðnu og sýkta íslenska sumargotssíld. (meira…)
Stjörnuhrap lýsti upp Suðurland

Óvenjubjart stjörnuhrap vakti athygli um miðnætti í gærkvöldi og barst lögreglunni á Suðurlandi fjöldi tilkynninga vegna þess. Að sögn varðstjóra var stjörnuhrapið svo skært að lýsti upp allt Suðurlandið. Tilkynningar bárust víða að og hringdi fólk meðal annars frá Vestmannaeyjum og Akranesi til þess að forvitnast um fyrirbærið. (meira…)