Svipmyndir frá sumarlokahófi ÍBV

Nú er búið að klippa saman stutt myndband frá sumarlokahófi ÍBV-íþróttafélags sem fór fram í Höllinni í gær. Hæst bar verðlaunaafhending en þau Kristín Erna Sigurlásdóttir og Andri Ólafsson voru kosin best hjá ÍBV og þau Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hlíf Hauksdóttir efnilegust. Þá fengu þau Eiður og Elísa Viðarsdóttir Fréttabikarinn 2009. (meira…)

Skoðuðu líkan af stórskipahöfn við Eyjar

Í gær skoðaði framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja líkan af mögulegri stórskipahöfn á norðanverðu Eiðinu. Siglingastofnun hefur útbúið líkan af mögulegri höfn og rannsakar nú hvort gerlegt sé að koma upp hafnarkanti á þessum stað. Innsigling hafnarinnar í Eyjum er þröng og rými til snúninga takmarkað fyrir stærri skip og því horfa heimamenn á svæðið utan […]

Andri og Kristín Erna best

Nú rétt í þessu lauk verðlaunaafhendingu á sumarlokahófi ÍBV-íþróttafélags en hápunktur kvöldsins er verðlaunaafhending meistaraflokkanna. Hjá karlaliði ÍBV var Andri Ólafsson valinn bestur, Eiður Aron Sigurbjörnsson efnilegastur og markahæstur varð Ajay Leitch-Smith. Í kvennaliðinu var Kristín Erna Sigurlásdóttir valin best og hún varð einnig markahæst í sumar en Hlíf Hauksdóttir var valin efnilegust. (meira…)

Hermann enn frá í liði Portsmouth

Enn verður bið á því að Hermann Hreiðarsson spili með Portsmouth á þessari leiktíð en fyrirliði íslenska landsliðsins er enn að jafna sig af meiðslum. Portsmouth mætir Wolves á útivelli í ensku úrvalsdeildinni á morgun en Portsmouth situr sem fastast á botni deildarinnar. Liðið hefur tapað öllum sjö leikjum sínum í deildinni og er komið […]

Sumarið gert upp

ÍBV spilaði aftur í efstu deild eftir tveggja ára hlé. Liðið rúllaði upp fyrstu deildinni árið 2008 og því mikill hugur í mönnum að standa sig vel meðal þeirra bestu. Nokkrir nýjir leikmenn voru fengnir Viðar Örn kom frá Selfossi og skoraði eins og enginn væri morgundagurinn en því miður kláraði markakvótann í deildarbikarnum, Elías […]

Grunnurinn kostaði 55 milljónir króna

Ólafur Snorrason, framkvæmda­stjóri umhverfis- og framkvæmda­sviðs bæjarins, segir að vinnu við grunn knattspyrnuhúss sé senn að ljúka og lokakostnaður verði 55 milljónir króna. „Tilboð í grunninn var upp á 47 milljónir en við viss­um að kostn­aður yrði meiri eftir að ákveðið var að snúa húsinu og gera það stækk­anlegt,“ sagði Ólafur. (meira…)

Guðrún Erlings á þing

Guðrún Erlingsdóttir tekur sæti á Alþingi 12. til 24. október. Guðrún skipaði 5. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar og kemur inn fyrir Róbert Marshall. „Mér finnst þetta mjög spenn­andi. Ég ætla að funda með odd­vita V og D lista í bæjarstjórn áður en ég fer inn á þingið enda mikilvægt að vera í […]

ÁTVR heldur upp á 15 ára afmæli

ÁTVR, Átthugafélag Vestmannaeyja eflir til kvöldvöku í sal Ferðafélags Íslands, þann 3. október í tilefni af 15 ára afmæli félagsins. Í tilkynningu frá félaginu segir að á dagsránni verði sögur og söngur að hætti Eyjamanna. Meðal annarra sem koma fram eru :Elva Ósk Ólafsdóttir, Íris Elíasdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Páll Steingrímsson, SIR Tríóið og Sönghópur ÁtVR. […]

�??Sláturtíð�?? hafin

Niðurskurðarhnífurinn er kominn á loft hjá ríkisvaldinu og ljóst að draga á saman í Vestmannaeyjum eins og víðast hvar á landsbyggð­inni. Í síðustu viku bárust þær fréttir að frá og með næstu áramótum verði landið eitt skattaumdæmi. Áfram verður starfsemi á fimm stöðum úti á landi en Vestmannaeyjar eru ekki þar á meðal. (meira…)

Mikið um að vera á Volcano og í Höllinni

Það verður nóg um að vera í Höllinni og Volcano Café um helgina. Helgin byrjar strax á morgun með stórtónleikum Papa og Gylfa Ægis, þar sem kóngurinn sjálfur Bubbi Morthens mætir. Tónleikarnir verða haldnir í Höllinni og hefjast klukkan 20.30. Á föstudagskvöldið verður svo sumarlokahóf ÍBV-íþróttafélags á sama stað en Siggi Hlö mun svo þeyta […]

Séra Kristján bloggar á Eyjunni

Séra Kristján Björnsson, sóknarprestur í Eyjum hefur bæst í myndarlegan hóp bloggara á Eyjunni en fyrsta blogg birtist hjá Kristjáni síðasta sunnudag. „Það er ekki annað hægt fyrir eyjaklerk en vera á Eyjunni. Nú nenni ég ekki að vera lengur á Moggabloggi en ástæða þess er að nú get ég alltaf sagt með sanni að […]

Silfur á Lundanum um helgina

Hljómsveitin Silfur mun trylla lýðinn á Lundanum bæði föstudags- og laugardagskvöld en sveitin hefur komið reglulega til Eyja við góðar undirtektir. Sveitin hefur þegar eignast stóran aðdáendahóp í Eyjum og því má búast við góðri stemmningu á Lundanum um helgina. Fjörið byrjar hins vegar á fimmtudagskvöldinu á fimmtudagsfjörinu með allskonar tilboðum. (meira…)

Tómas Ingi tekur við HK

Eyjamaðurinn Tómas Ingi Tómasson verður næsti þjálfari 1. deildarliðs HK. Tómas Ingi spilaði með ÍBV, KR, Þrótti, Grindavík og KFS og einnig í Danmörku, Þýskalandi og Noregi sem atvinnumaður. Síðustu tvö sumur hefur hann verið sérstakur spekingur í umfjöllun um íslenska knattspyrnu á Stöð 2 en auk þess hefur hann verið aðstoðarþjálfari U-21 árs landsliðs […]

Fæstir mæta á Hásteinsvöllinn

Samkvæmt samantekt Knattspyrnusambandsins mæta fæstir áhorfendur að meðaltali á Hásteinsvöllinn. Sú staðreynd kemur reyndar ekki mjög á óvart enda eru stuðningsmenn aðkomuliðanna ekkert að þvælast fyrir á heimaleikjum ÍBV. Alls mættu 628 manns að meðaltali á leiki ÍBV. (meira…)

Andri í liði síðasta þriðjungs Íslandsmótsins

Andri Ólafsson, varnar-, miðju-, sóknarmaður og fyrirliði ÍBV var valinn í lið síðasta þriðjungs Íslandsmótsins en valið var kunngert í hádeginu. Andri er þannig fyrsti og eini leikmaður ÍBV til að komast í úrvalslið deildarinnar en þrjú slík voru valin, eftir 8. umferð, 15. umferð og 22. umferð. (meira…)

7-und aftur saman

Hljómsveitin 7-und hefur ákveðið að koma saman aftur og spila á nokkrum dansleikjum í haust. Byrjað verður á Spot um helgina 3. okt en þá verður slegið upp Stórdansleik að hætti Eyjamanna ásamt Logum sem eru að fagna 45 ára starfsafmæli og svo Hljómsveitinni Hröfnum sem er skipuð gömlum unglingum úr Eyjum. 7-und var stofnuð […]

Tíundi stúturinn tekinn um helgina

Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í vikunni sem leið, en eitthvað var um útköll vegna veðurs enda eru haustlægðirnar að ganga yfir landið þessa dagana. Þá var eitthvað um pústra í kringum skemmtanahald helgarinnar en engar kærur liggja fyrir. Lögreglan stöðvaði ökumann aðfaranótt sl. sunnudags grunaðan um akstur undir áhrifum áfengis. Er þetta […]

Vestfirðingar óánægðir með samgönguleysi

Almenn óánægja ríkir meðal íbúa á suðursvæði Vestfjarða um þessar mundir vegna samgönguleysis. Landleiðin til Reykjavíkur hefur verið nánast ófær undanfarið og ferjan Baldur hefur verið upptekin í siglingum fyrir Vestmannaeyinga. Búið var að auglýsa ferð með Baldri yfir Breiðafjörð á laugardag en vegna þess að ekki náðist að klára viðgerð á Herjólfi var ferðinni […]

Árás á landsbyggðina af þeim sem standa ættu vörð um hana

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti einróma á fundi sínum harðorða ályktun þar sem lagst er gegn því að embætti skattstjóra í Vestmannaeyjum verði lagt niður. Eins og greint hefur verið frá áður hér á Eyjafréttum er fyrirhugað að gera landið að einu skattaumdæmi og allt bendir til þess að starfsemin leggist niður hér. Bæjarstjórn lítur á hugmyndirnar […]

Stefnan ein er skaðleg

Í þau þúsund ár sem við Íslendingar höfum lifað á fiskveiðum og –vinnslu hefur aldrei ríkt eins mikil óvissa um framtíð atvinnulífs okkar. Aldrei hefur deilan um nýtingu sjávarauðlindarinnar og sjávarútveginn verið eins mikil og núna. Ógnir um eignaupptöku og hugsanlegt framsal nýtingarréttar til erlendra þjóða eru nú grár og helkaldur veruleiki. Margir íbúar sjávarbyggða […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.