Sæstrengir þurfa ekki að fara í mat

Fyrirhuguð lagning tveggja sæstrengja milli Landeyjasands og Vestmannaeyja er ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skal hún því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulagsstofnun telur að helstu umhverfisáhrif framkvæmdanna kunni að verða þar sem leggja á háspennustrengina nærri friðlýstum virkishleðslum á Skansinum í Vestmannaeyjum. (meira…)

Eyjamenn efstir á Íslandsmóti skákfélaga

A-sveit Taflfélags Vestmannaeyja er í efsta sæti eftir fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga en mótið fór fram í Rimaskóla um helgina. Eyjamenn byrjuðu ekki vel, töpuðu fyrir Taflfélagi Reykjavíkur í fyrstu umferð 5:3 en hafa ekki misstigið sig aftur og fóru hratt upp töfluna. Eyjamenn eru efstir með 20,5 vinninga, Bolvíkingar eru í öðru sæti með […]

Grunaður um ölvun við akstur

Ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur í Vestmannaeyjum í nótt. Tekin var af honum blóðprufa og sýnið sent til rannsóknar. Einhverjar stympingar urðu einnig fyrir utan skemmtistað í nótt. Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni í Vestmanaeyjum. (meira…)

Bíll valt á Stórhöfðavegi

Bíll valt á Stórhöfðavegi síðdegis í dag en tvennt var í bílnum. Fólkið slapp með skrámur en bílinn er talsvert skemmdur á annarri hliðinni og var fjarlægður með kranabíl. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fór bíllinn að rása í hvassviðrinu í dag en ökumaðurinn hafði aðeins verið með bílpróf í einn dag. (meira…)

Eyjamenn niðurlægðir í síðasta leik sumarsins

Lokasprettur Eyjamanna verður vonandi ekki lengi í minnum hafður en ÍBV tapaði síðustu þremur leikjum sínum og markatalan úr þeim leikjum er 14 mörk fengin á sig og þrjú skoruð. Í dag voru Eyjamenn niðurlægðir í Keflavík þar sem ÍBV tapaði fyrir heimamönnum 6:1. Eina mark ÍBV gerði Matt Garner þegar hann jafnaði 1:1. Staðan […]

Lundaball með drottningarbrag

Lundaballið verður haldið í Höllinni í kvöld, laugardag og lundakarlar og fylgifiskar þeirra orðnir spenntir enda boðið upp á mat, skemmtun og ball í sérflokki. Ballið verður einstaklega veglegt í ár, Einsi kaldi sér um að galdra fram rétti í stórkostlega villibráðarveislu með dyggri aðstoð Suðureyinga sem sjá um ballið að þessu sinni. Skemmtidagskráin verður […]

Herjólfur aftur í áætlun

Herjólfur hóf aftur áætlunarsiglingar milli lands og eyja í morgun. Skipið kom til Vestmannaeyja klukkan sex í morgun eftir rúmlega sólarhringssiglingu frá Akureyri í slæmu veðri. Skipverjar segja að versta veðrið hafa verið við Reykjanesskaga og að endurbættur veltiuggi skipsins hafi komið að góðum notum. Annar tveggja veltiugga Herjólfs var lagfærður við viðhald skipsins á […]

�?órhildur skrifar undir tveggja ára samning

Þórhildur Ólafsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning hjá ÍBV. Þórhildur var einn lykilmanna ÍBV í sumar en liðið missti naumlega af sæti í úrvalsdeild þegar liðið fékk á sig mark í uppbótartíma í undanúrslitum. Vitað var af áhuga annarra liða á að fá Þórhildi til liðs við sig en sjálf segir hún aldrei annað […]

Baldur siglir eina ferð

Baldur leggur af stað frá Eyjum núna klukkan 10.00 en athygli vekur að ölduhæð við Surtsey er talsvert yfir viðmiðunarmörkum. Miðað er við 3,5 metra ölduhæð en ölduhæðin við Surtsey var 6,7 metrar klukkan 9:00. Áætlað er að skipið sigli frá Þorlákshöfn klukkan 13.30. (meira…)

Herjólfur á leið til Eyja

Herjólfur lagði af stað frá Akureyri um þrjúleytið í nótt eftir viðgerð í flotkvínni á Akureyri. Annar af tveimur veltiuggum var lagaður en ugginn hefur verið bilaður í tæpt ár. Þá var önnur af tveimur aðalvélum tekin upp og löguð en vélin hefur átt það til að bila með reglulegu millibili. Áætlað er að Herjólfur […]

Baldur bíður færis

Farþegaferjan Baldur gat ekki siglt samkvæmt áætlun í dag en skipið átti að halda úr höfn klukkan 8:00. Ölduhæð við Surtsey er nú 6,9 metrar en miðað er við 3,5 metra ölduhæð ef Baldur á að sigla. Ekki er þó búið að slá ferðina af, athuga á klukkan 9:30 en Baldur fer ekki seinni ferðina […]

Eyjastúlkur skoruðu þrjú mörk

Þær Kristín Erna Sigurlásdóttir, leikmaður ÍBV og Berglind Björg Þorvaldsdóttir, sem nú spilar með Breiðabliki, skoruðu þrjú af fimm mörkum íslenska U-19 ára landsliðsins gegn Rúmeníu í gær. Þar með komst íslenska liðið áfram í milliriðil Evrópumótsins. Þriðja Eyjastúlkan, Elísa Viðarsdóttir sem spilar með ÍBV, er einnig í leikmannahópi íslenska liðsins. (meira…)

Baldur fer ekki seinni ferð á morgun

Nú fyrir skömmu var ákveðið að farþegaskipið Baldur sigli ekki síðari áætlunarferð sína á morgun, föstudag. Spáð er stormi á morgun og hefur ferð skipsins verið frestað af þeim sökum. Herjólfur tekur svo við siglingum á áætlunarleiðinni á laugardag og siglir frá Eyjum klukkan 8:15. (meira…)

Herjólfur tefst

Tafir hafa orðið á viðhaldi Herjólfs í slippnum á Akureyri. Hann kemst því ekki í áætlunarsiglingar milli Eyja og Þorlákshafnar fyrr en kl. 8.15 á laugardagsmorgun. Skv. heimildum eyjafretta, er töfin tilkomin vegna rangra varahluta í veltiugga skipsins. (meira…)

Hafnargerðin í Bakkafjöru á undan áætlun

Hafnargerðin í Bakkafjöru gengur vel og er á undanáætlun. Í sumar var unnið við hafnargerðina allan sólarhringinn með 110 starfsmönnum. Nú er hinsvegar unnið á dagvöktum með milli 40 og 50 starfsmönnum. Garðarnir sjálfir eru nánast komnir í fulla lengd, en hausarnir er eftir. Alls var tilboð Suðurverks, sem byggir hafnargarðana, uppá 1868 milljónir króna […]

Fitulagið allt á höfuðborgarsvæðinu

„Ef af því verður þá er það ekkert annað en árás á landsbyggðina af þeim sem standa ættu vörð um hana,“ sagði Elliði Vignisson, bæjar­stjóri þegar hann var spurður um fyrirhugaða lokun á skatt­stof­unni í Eyjum. „Við værum að tapa bæði grunn­þjónustu og mikilvægum störfum. Það er algerlega óþolandi hversu gjarnan kerfiskallar og -kerlingar í […]

Hef mestar áhyggjur af starfsfólkinu

Í síðustu viku voru skattstjórar landsins boðaðir til fundar og þeim tilkynnt að frá og með næstu ára­mót­um verði landið eitt skatta­umdæmi. Áfram verður starfsemi á fimm stöðum úti á landi og Vest­mannaeyjar eru ekki þar á meðal. Framtíðin er óráðin en í versta falli verður skattstofunni lokað. Þrír starfsmenn vinna á skattstofunni auk skattstjóra. […]

Sannleikur Péturs Jóhanns í Höllinni

Nú hefur það fengist staðfest að vinsælasti og ástælasti leikari þjóðarinnar, Pétur Jóhann Sigfússon, mun mæta í Höllina með stórsýninguna Sannleikurinn, þann 13. nóvember næstkomandi. Forsala miða hefst á Volcano Café miðvikudaginn 30. september klukkan 12.00 og takmarkast miðafjöldi við sætafjölda í Höllinni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Höllinni, sem má lesa hér að […]

Líkur á 230 milljóna skerðingu

Fyrir bæjarráði á þriðjudaginn lá fyrir bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þar sem boðaður er mikill niðurskurður á framlögum til Vestmannaeyjabæjar. Á fundinum kom fram að heild­artekjur Vestmannaeyjabæjar árið 2008 í gegnum Jöfnunarsjóð voru 525 milljónir. Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 329.600.000 eða rúmlega 37% skerðingu. Nú bendir flest til þess að skerðingin verði að […]

Herjólfur siglir seinni ferð frá �?orlákshöfn á föstudag

Herjólfur á að fara niður úr slippnum á Akureyri á miðnætti í kvöld og fer að bryggju þar sem lokið verður við viðgerð. Áætlað er að hann sigli frá Akureyri á hádegi á morgun, fimmtudag, og hefji áætlunarsiglingar frá Þorlákshöfn í seinni ferð á föstudag eða kl. 19:30. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.