Smartmedia gefur söfnunarátakinu Á rás fyrir Grensás vefsíðu

Eyjafyrirtækið Smartmedia styður dyggilega við bakið á söfnunarátakinu Á rás fyrir Grensás, sem er söfnunarátak fyrir Grensásdeild og endurhæfingardeild Landspítalans. Það eru Hollvinir Grensásdeildar sem standa að söfnuninni en leikkonan Edda Heiðrún Backman opnaði síðuna eftir að Kjartan Ólafsson Vídó hafði afhent hópnum hana. Síðuna má sjá á www.grensas.is. (meira…)
Baldri seinkar vegna sjávarfalla

Seinkun verður á ferðum Baldurs milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar í dag 22.september. Baldur lagði af stað í fyrri ferð frá Vestmannaeyjum kl.10:30 í morgun og er áætluð brottför frá Þorlákshöfn kl.14:00. Seinni ferðin er áætluð frá Vestmannaeyjum kl.17:30 og frá Þorlákshöfn kl.21:00 í kvöld. (meira…)
ÍBV kaupir Mawejje

Knattspyrnudeild ÍBV hefur ákveðið að kaupa Tonny Mawejje, úganska miðjumanninn sem hefur verið í láni hjá Eyjamönnum í sumar. Mawejje var lánaður frá úganska úrvalsdeildarliðinu URA fyrir þetta tímabil og höfðu Eyjamenn forkaupsrétt á leikmanninum, sem þeir nýta sér nú. Sigursveinn Þórðarson, formaður knattspyrnudeildar, segir kaupverðið trúnaðarmál. Kauptilboð ÍBV hafi hins vegar verið samþykkt og […]
Hermann ekki klár í slaginn gegn Carlisle

Hermann Hreiðarsson verður ekki klár í slaginn með Portsmouth annað kvöld en þá sækir liðið Carlisle heim í 3. umferð ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu. Hermann er ekki búinn að ná sér af meiðslum í il en hann hefur ekkert spilað með suðurstrandarliðinu á tímabilinu. (meira…)
Dansa í kringum viðmið innan skynsamlegra marka

Fjórar ferðir Baldurs milli lands og eyja hafa fallið niður fyrstu vikuna sem skipið hefur sinnt siglingum í fjarveru Herjólfs. Siggeir Pétursson, skipstjóri, segist skilja að Eyjamenn séu óánægðir með það að ferðir falli niður. Hann segir áhöfn skipsins hins vegar hafa fengið mjög góðar móttökur og að farþegar sýni málinu skilning. Að hans mati […]
Stympingar, rúðubrot, skemmdir á bifreið og umferðarlagabrot

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið. Nokkur erill var í kringum skemmtanahald helgarinnar og eitthvað um stympingar. Hins vegar liggja engar kærur fyrir. Einn fékk að gista fangageymslur lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar en hann var handtekinn á veitingastaðnum Volcano eftir að hafa hrint einum gesti staðarins á útidyrahurð þannig […]
Viðar �?rn er með slitið krossband

Nú er komið í ljós að Viðar Örn Kjartansson, framherji ÍBV, er með slitið krossband. Hann varð fyrir meiðslunum í leik gegn FH í síðustu viku og í fyrstu var óttast að krossbandið væri slitið. Fyrir helgi bárust svo fréttir af því að krossbandið væri heilt en festingar þess hefðu brotnað frá beininu. Í aðgerð […]
�?flug nágrannavarsla fælir burt þjófa

Námskeið um nágrannavörslu verður haldið í Vestmannaeyjum á mánudag en forvarnahópur á vegum SJÓVÁ hefur unnið verkefnið. Herdís Storgaard, umsjónarmaður verkefnisins sagði nágrannavörslu hafa byrjað árið 2006 en Reykjavík var fyrsta sveitarfélagið sem fór af stað með slíkt verkefni. (meira…)
Bólusetning gegn svínaflensu að hefjast

Samkvæmt ákvörðun sóttvarnarlæknis verður einstaklingum nú boðið upp á bólusetningu gegn svokallaðri svínainflúensu. Bóluefnið er ekki komið til landsins en reiknað með að það komi í 4 skömmtum fram til áramóta og fyrsti skammtur komi fyrir nk. mánaðamót. Stefnt er að því að hefja bólusetningu um mánaðamótin september-október. (meira…)
Baldur var ódýrastur

„Siglingin gengur vel, við erum að nálgast Eyjarnar,“ sagði Unnar Valby Gunnarsson, skipstjóri á Baldri, í samtali við Morgunblaðið á ellefta tímanum í gærkvöld. Breiðafjarðarferjan er notuð í stað Herjólfs sem er í slipp á Akureyri en vonast er til að skipið verði komið aftur í áætlun um næstu helgi. Undanfarin ár hefur ferjan St. […]
Eyjapeyjar í öðru sæti

Sveit Grunnskóla Vestmannaeyja náði þeim stórgóða árangri að enda í 2. til 3. sæti á Norðurlandamóti barnaskólasveita í skák en mótið fór fram í Eyjum um helgina. Sveit Eyjamanna var lengst af í öðru sæti en á síðustu metrunum skutust Svíar upp að hlið þeirra og urðu sveitirnar hnífjafnar. Sveit Noregs varð hins vegar Norðulandameistari […]
Einn fékk gistingu hjá lögreglu í nótt

Einn gisti fangageymslur lögreglunnar í Vestmannaeyjum í nótt. Að sögn lögreglu var hún kölluð út vegna slagsmála. Einn veitti mótþróa við handtöku og fékk hann að sofa úr sér í fangageymslu en verður svo yfirheyrður í dag. (meira…)
Kristín Erna skoraði fyrir U-19

Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði síðara mark Íslands í 2:0 sigri á Portúgal með U-19 ára landsliði Íslands. Riðillinn er einmitt leikinn í Portúgal en þetta var fyrsti leikur íslenska liðsins. Markið kom á 82. mínútu en Þórhildur Stefánsdóttir, leikmaður HK/Víkings hafði komið Íslandi yfir á 66. mínútu. (meira…)
Stórt tap gegn Finnum

Sveit Grunnskóla Vestmannaeyja reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn Finnum en Eyjamenn náðu aðeins hálfum vinningi og töpuðu því 0,5-3,5. Rimaskóli, hin íslenska sveitin í mótinu náði svo aðeins einum vinningi gegn Norðmönnum, sem sitja í efsta sæti. Þessi umferð var því íslensku sveitunum erfið en síðasti keppnisdagur mótsins er á morgun. Úrslit […]
Eyjamenn með stórsigur gegn Dönum

Skáksveit Grunnskóla Vestmannaeyja vann 4-0 stórsigur á dönsku sveitinni í þriðju umferð NM barnaskólasveita sem fram fór í morgun. Rimaskóli gerði 2-2 jafntefli við sænsku sveitina. Norska sveitin er efst með 8,5 vinninga, Eyjamenn í öðru sæti með 8 vinninga og Rimaskóli í þriðja sæti með 6,5 vinning. Í fjórðu umferð, sem hófst kl. 16:30 […]
Eins og svart og hvítt gegn Fylki

Leikur ÍBV gegn Fylki var kaflaskiptur í meira lagi. Í fyrri hálfleik voru Eyjamenn mun sterkari og hefðu í raun átt að skora meira en eitt mark. Í þeim síðari var hins vegar eins og leikmenn ÍBV hefðu engan áhuga á leiknum og Fylkismenn gengu á lagið. Fylkir skoraði þrjú mörk í síðari hálfleik en […]
Taka á móti Fylki í dag

Í dag klukkan 14.00 fer fram síðasti heimaleikur ÍBV í sumar þegar Eyjamenn taka á móti Fylki. Sæti ÍBV í úrvalsdeild er tryggt eftir að Fjölnir tapaði í síðustu umferð en leikmenn ÍBV vilja sjálfsagt safna fleiri stigum í sarpinn og færa liðið ofar í töflunni. Fylkismenn eiga hins vegar enn möguleika á 2. sætinu […]
Viðar �?rn ekki með slitin krossbönd

Viðar Örn Kjartansson, framherji ÍBV, er ekki með slitin krossbönd eins og óttast var. Krossböndin reyndust ekki slitin heldur losnuðu þau frá beininu við neðanvert hnéð en bein milli hnés og sköflungs brotnaði. Viðar fór í aðgerð í hádeginu í hjá Ágústi Kárasyni þar sem að þetta var lagað. (meira…)
Jafntefli í fyrstu viðureign hjá Eyjapeyjum

Það er útlit fyrir afar spennandi Norðurlandamót barnaskólasveita sem fram fer í Vestmannaeyjum um helgina. Í fyrstu umferð gerðu heimamenn í Grunnskóla Vestmannaeyja jafntefli við Rimaskóla. Norðmenn unnu Svía, 2,5-1,5 og Finnar og Danir gerðu 2-2 jafntefli. Margt bendir því afar jafns og spennandi móts og að úrslitin ráðast ekki fyrr en á síðustu metrunum. […]
Eyjamenn fara að eins og Castró á Kúbu forðum.

Já, Eyjamenn eru alltaf úrræðagóðir.Ég sá það í eyjafrettir.is að Vestmannaeyingar hafa nú þegar tekið ákvörðun um að fresta Þrettándanum til föstudagsins 8.janúar 2010. Aðrir landsmenn munu væntanlega halda þrettándann hátíðlegan 6.janúar. Á sínum tíma var það heimsfrétt þegar Castró á Kúbu ákvað að fresta jólunum um nokkurn tíma þannig að fólk gæti unnið í […]