Leikur ÍBV og Fylkis færður fram um einn dag

Mótanefnd KSÍ hefur ákveðið að leikur ÍBV og Fylkis verði færður fram um einn dag og verði því á morgun, laugardag klukkan 14.00. Í tilkynningu frá sambandinu kemur fram að spáð er slæmu veðri í Vestmannaeyjum á sunnudag og ólíklegt ða leikhæft verði á þeim tíma sem leikurinn er settur á. Þar sem um næst […]
Norðurlandamót barnaskólasveita hefst í dag

Klukkan tíu í dag hefst Norðurlandamót barnaskólasveita í skák hér í Vestmannaeyjum. Keppendurnir, fæddir 1996 og yngri, koma frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og tvær sveitir frá Íslandi, en gestalandið teflir fram tveimur sveitum. Um þrjátíu keppendur tefla á mótinu, fjórir keppendur í hverri sveit auk varamanna. Reiknað er með að um sextíu manns, keppendur, […]
Súperman og frú í Wipe out

Stöð 2 er nú að nú að undirbúa upptökur á íslenskri útgáfu af þrautaþáttunum Wipe out eða Buslugangur eins og hann kemur til með að heita á íslensku. Þættirnir verða teknir upp í Argentínu en fjölmargir Íslendingar svöruðu auglýsingu sjónvarpstöðvarinnar um að taka þátt í upptökunum. Þar á meðal voru að sjálfsögðu nokkrir Eyjamenn en […]
Margrét Lára með þrennu í stórsigri á Eistum

Það héldu engin bönd íslenska kvennalandsliðinu í kvöld þegar liðið mætti Eistum á Laugardalsvellinum. Íslenska liðið vann stórsigur 12:0 en Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þrjú mörk og var ásamt Hólmfríði Magnúsdóttur, markahæst. Íslenska liðið hefur nú leikið tvo leiki í undankeppni HM, unnið báða og markatalan er 17:0. (meira…)
Verðandi gaf Slysavarnarskólanum áverkabrúðu

Í tilefni 70 ára afmælis Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Vestmannaeyjum, færði félagið Slysavarnaskóla sjómanna áverkabrúðu að gjöf. Bergur P. Kristinsson formaður félagsins afhenti skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna, Hilmari Snorrasyni, brúðuna. (meira…)
Seinni ferð Baldurs fellur niður í dag

Enn þarf að fella niður ferðir Baldurs en skipið siglir ekki síðari ferð sína í dag, fimmtudag. Skipið má ekki sigla í meiri ölduhæð en 3,5 metrar á ölduduflinu við Surtsey en nú er ölduhæðin 3,6 metrar. Skipið sigldi fyrri ferðina og er væntanlegt til hafnar í Eyjum um klukkan 15:40. (meira…)
Kanna nýja stórskipahöfn í Eyjum

Meðal verkefna hjá Siglingastofnun Íslands er gerð líkantilrauna á mögulegum hafnarframkvæmdum. Markmið tilrauna þessara er að útfæra sem bestar lausnir í stórum verkefnum um byggingu hafna og varnargarða áður en ákvarðanir eru teknar um framkvæmdir. Reynslan af líkangerðinni hefur verið afar góð og niðurstöður nær raunveruleikanum en til dæmis tölvuspár. (meira…)
Treysti mér til að sigla í nánast hvaða veðri sem er

Eyjamenn virðast varla vita í hvorn fótinn þeir eiga að stíga þegar farþegaskipið Baldur er annars vegar. Margir klóruðu sér í hausnum og skildu ekkert í því að skipið hefði siglt síðasta mánudag í vondu sjóveðri en farþegar segja að mikið hafi gengið á, á heimleiðinni. Næsta dag fór skipið ekki vegna veðurs og þá […]
Komu frá Taiwan til að sleppa lundapysju

Fjölmargir taka þátt í árlegri björgunaraðgerð í Vestmannaeyjum þessa dagana þegar bjarglausum pysjum bæjarins er bjargað af götum bæjarins. Nokkrir aðkomumenn fá að taka þátt í aðerðunum en líklega hefur enginn komið eins langt að og stelpurnar tvær frá Taiwan, sem slepptu lundapysju í gær. (meira…)
Um 200 pysjum hefur verið bjargað

Lundastofninn er í lægð og í sumar voru veiðar takmarkaðar frá því sem verið hefur. Það var því mikið gleðiefni þegar pysjur tóku að leita í bæinn, fullorðnum og börnum til mikillar ánægju. Fjöldinn virðist vera svipaður og í fyrra en pysjan virðist ágætlega haldin. (meira…)
Norðurlandamót barnaskólasveita í Eyjum um helgina

Um helgina verður haldið Norðurlandamót barnaskólasveita í skák hér í Vestmannaeyjum. Keppendurnir, fæddir 1996 og yngri, koma frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og tvær sveitir frá Íslandi, en gestalandið teflir fram tveimur sveitum. Um þrjátíu keppendur tefla á mótinu, fjórir keppendur í hverri sveit auk varamanna. Reiknað er með að um sextíu manns, keppendur, liðsstjórar […]
�?rettándinn færður til 8. janúar

Á heimasíðu ÍBV er greint frá því að Þrettándanefndin hafi komið saman og lagt drög að næstu Þrettándahátíð. Eitt fyrsta verkið hafi verið að ákveða dagsetningu hátíðarhaldanna. Ákveðið var að færa Þrettándann til 8. janúar, sem er föstudagur en áætlað er að hátíðahöldin hefjist klukkan 19.00. (meira…)
Milljónatap vegna frátafa Baldurs

Fyrirtæki í Vestmannaeyjum fara ekki varhluta af því þegar ferðum Baldurs hefur verið frestað en Baldur sigldi ekki seinni ferð á mánudag og engin ferð var farin á þriðjudag vegna veðurs. Baldur er nokkuð minni en Herjólfur og má því eingöngu sigla þegar ölduhæð er undir 3,5 metrum. Kári Hrafnkelsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Vestmannaeyja, sagði í […]
Baldur siglir samkvæmt áætlun í dag

Farþegaskipið Baldur siglir samkvæmt áætlun milli lands og Eyja í dag en skipið hélt frá Eyjum í morgun. Ölduhæð nú er nokkuð undir viðmiðunarmörkum en ölduhæð nú er 2,4 metrar við Surtsey. Samkvæmt áætluninni verður skipð í Eyjum um þrjú í dag og heldur svo af stað aftur til Þorlákshafnar um fjögur. (meira…)
30 ár frá fyrsta Íslandsmeistaratitlinum

Í dag, 16. september, eru þrjátíu ár liðin frá því að karlalið ÍBV varð fyrst Íslandsmeistari í knattspyrnu. Eyjamenn höfðu tvívegis áður orðið bikarmeistarar en aldrei náð að landa þeim stóra, þótt oft hafi þeir komist nálægt því. Eyjamenn fögnuðu sigri á Íslandsmótinu í stæðunum á Laugardalsvelli þar sem síðustu leikirnir fóru ekki allir fram […]
Sæti ÍBV öruggt

Sæti ÍBV í úrvalsdeild er tryggt en í kvöld tapaði Fjölnir fyrir Fram. Þar með missti Fjölnir af möguleikanum að hanga í deildinni og getur ekki náð ÍBV eða Grindavík að stigum. Fjölnir fellur því niður í 1. deild ásamt Þrótti en sæti þeirra taka Selfyssingar og Haukar. (meira…)
Brimgarðarnir í Bakkafjöru hafa staðið af sér áhlaupið og gott betur

Sú saga gengur nú fjöllum hærra í Eyjum að rofa hafi myndast í öðrum af tveimur brimvarnargörðum í Bakkafjöru. Þegar leitað var eftir upplýsingum hjá Helga Gunnarssyni, verkstjóra hjá Suðurverki í Bakkafjöru svaraði hann á þann veg að það væri innantómt kjaftæði að það væri komið rof í annann garðinn. (meira…)
Seinni ferð Baldurs felld niður

Seinni ferð Baldurs fellur niður í dag, þriðjudag og siglir því skipið ekkert í dag þar sem fyrri ferð skipsins féll einnig niður í morgun. Ölduhæð við Surtsey er nú 6,2 metrar en Baldur má ekki sigla í meiri ölduhæð en 3,5 metrum samkvæmt ákvörðun Siglingastofnunar. Engin ferð sjóleiðina milli lands og Eyja hefur gríðarlega […]
Frábært

Þessi hugmynd af fá Baldur í þessar siglingar er svo döpur fyrir okkur Eyjamenn að það hálfa væri nóg. Sú þögn sem mér finnst hafa verið í kringum þann gjörning á fá þetta skip af hálfu bæjarstjórnar finnst mér með ólikindum. Já já ok þetta eru bara 2 vikur en þetta er ekki það sem […]
Baldur siglir ekki

Fyrri ferð Baldurs sem átti að fara kl. 8 í morgun hefur verið slegin af vegna veðurs. Ölduhæðin við Surtsey var þá 6,1 metri. Í tilkynningu frá afgreiðslu skipsins segir, að athuga eigi með seinni ferð skipsins kl. 13.00 í dag. (meira…)