Námskeið um nágrannavörslu verður haldið í Vestmannaeyjum á mánudag en forvarnahópur á vegum SJÓVÁ hefur unnið verkefnið. Herdís Storgaard, umsjónarmaður verkefnisins sagði nágrannavörslu hafa byrjað árið 2006 en Reykjavík var fyrsta sveitarfélagið sem fór af stað með slíkt verkefni.