Bæjaryfirvöld meðvituð um lokun flugvallarins
Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum var kunnugt um að til stæði að loka Vestmannaeyjaflugvelli á laugardögum. �?etta segir Friðþór Eydal, talsmaður Isavia en hann segir að fulltrúi Isavia hafi upplýst fulltrúa bæjarstjóra 14. febrúar að til stæði að enginn fastur þjónustu tími yrði á flugvellinum á laugardögum. �??Isavia hefur haft fasta vakt á Vestmannaeyjaflugvelli alla daga vikunnar. Flugfélagið Ernir sem heldur uppi áætlunarferðum til Eyja hafði gefið út að ekki yrði flogið áætlunarflug á laugardögum í vetur. �?ess vegna var ákveðið að frá og með 15. mars til og með 26. apríl yrði ekki mönnuð vakt á laugardögum, en flugvöllurinn yrði alltaf opnaður samkvæmt beiðni. Fulltrúi Isavia upplýsti fulltrúa bæjarstjórans í Vestmannaeyjum 14. febrúar sl. um að í ljósi þessa yrði enginn fastur þjónustutími á laugardögum í vetur í hagræðingarskyni. Engar athugasemdir bárust frá bæjarstjóra vegna málsins.�??
Fallið var frá lokun flugvallarins á laugardögum en Friðþór segir að aðeins hafi styttingu þjónustutímans verið slegið á frest. �??Flugfélagið Ernir sendi beiðni í gær um opnun á laugardögum vegna breyttra aðstæðna og var því vel tekið. Hefur styttingu þjónustutíma flugvallarins því verið frestað um sinn og ræðst framhaldið af því hver þörfin fyrir þjónustu verður það sem eftir lifir vetrar.�??

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.