Bætt þjónusta í síma 1700 og netspjalli Heilsuveru

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ýtti í dag úr vör kynningarátaki á stóraukinni þjónustu og ráðgjöf um heilsutengd málefni í símanúmerinu 1700 og á netspjalli Heilsuveru. Markmiðið með eflingu þjónustunnar er að auka þjónustu við almenning með heilbrigðistengdri ráðgjöf og vegvísun í viðeigandi þjónustu.

Hjúkrunarfræðingar og annað sérþjálfað starfsfólk Upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Læknavaktarinnar svara símtölum frá almenningi allan sólarhringinn, leysa úr erindum og benda á hvar viðkomandi getur sótt sér þjónustu ef þörf er á. Reynslan af þessari þjónustu sýnir að hægt að leysa úr sífellt stærri hluta erinda með fjarlausnum sem er betri þjónusta fyrir einstaklinginn og dregur jafnframt úr álagi á heilbrigðiskerfið.

Það er mikilvægt að koma á markvissri vegvísun í viðeigandi þjónustu innan heilbrigðiskerfisins og auka þannig aðgengi að þjónustunni. Með því að efla vegvísun í síma og netspjalli eykst skilvirkni í kerfinu og þörfum einstaklinga betur mætt með réttri þjónustu á réttum stað,“ segir Willum.

Það getur verið flókið fyrir almenning að vita hvert er best að sækja þjónustu þegar upp koma veikindi eða slys. Þetta hefur meðal annars leitt til þess að fólk leitar til bráðamóttöku, þar sem álag er mikið, með úrlausnarefni sem hægt er að leysa með öðrum hætti. Með einu símtali í síma 1700 eða netspjalli á Heilsuveru er hægt að fá ráðgjöf um hvert sé best að leita, en áfram er mikilvægt að hringja í neyðarnúmerið 112 í neyðartilvikum.

Bætt aðgengi

„Við erum að búa til eina gátt inn í heilbrigðisþjónustuna til þess að einfalda verulega allt aðgengi fyrir almenning,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Þetta eru leiðir sem er auðvelt að muna og auðvelt að læra; hringja í 112 í neyð en annars heyra í okkur í síma 1700 allan sólarhringinn eða í netspjalli Heilsuveru milli klukkan 8 og 22.“

Hún segir starfsfólk sem svari símanum og netspjallinu gera allt sem hægt er til að grípa erindi fólks, leysa úr þeim eða koma þeim í réttan farveg. Einnig verði áfram lögð áhersla á að bæta upplýsingar á fræðsluvef Heilsuveru til að veita fólki góðar og áreiðanlegar upplýsingar um einkenni, sjúkdóma og önnur heilbrigðismál.

Þetta segir í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu.

Nýjustu fréttir

Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.