Barátta Eyjakonu
Inga Guðgeirsdóttir er mikil baráttukona. Hún hefur í haust og vetur staðið fyrir mótmælafundum við Heilbrigðisstofnunina, þar sem mótmælt hefur verið niðurskurði á fjárveitingum til stofnunarinnar. Barátta sem enn hefur kannski ekki skilað þeim árangri sem vonast var til en engu að síður vakið athygli á vandanum. Sjálf er Inga að glíma við erfið veikindi og þarf oft að leita læknisaðstoðar í Reykjavík. En eins og samgöngum er nú háttað við Eyjar, er slíkt ekki auðvelt. Hún hefur því líka látið í sér heyra um Herjólfsverkfallið og allt sem því fylgir. Inga hefur sett saman myndband, einskonar baráttumyndband vegna Herjólfs og Heilbrigðisstofnunarinnar. Ljósmyndir í myndbandið fékk hún hjá �?mari Eðvaldssyni, Pétri Steingrímssyni, Helga Rasmussen og Ruth Zohlen. Undir er leikið lagið �??Ísland er land mitt.�??

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.