Beiðni Stillu útgerðar um rannsókn vísað frá
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra hafnar tilmælum Stillu útgerðar ehf. um að tilnefna rannsóknarmenn til að rann­saka hvernig staðið var að sölu hlutabréfa í Vinnslu­stöðinni hf. á árinu 2010. Stilla útgerð, sem fer með ríflega 31% eignarhlut í VSV, fór fram á að ráðherra skipaði rannsóknarmenn í samræmi við ákvæði hlutafélaga­laga þar að lútandi. Ráðherra hefur nú synjað erindinu og færir fyrir því rök í ítarlegri greinargerð. �?ar kemur fram að hvorki í gögnum né sjónar­miðum hafi komið fram nægj­anlegar ástæður fyrir því að tilnefna rannsóknarmenn.
Erindi Stillu útgerðar varðaði viðskipti með hlutabréf í VSV sem Herbjarnarfell ehf. keypti fyrir ­milligöngu Sparisjóðs Vestmanna­eyja. Um svipað leyti lagði VSV Sparisjóði Vestmannaeyja til stofnfé við endurskipulagningu hans. Stilla óskaði eftir að rannsakað yrði hvort �??hagsmunir Vinnslustöðvarinnar hf. hafi verið hafðir að leiðarljósi þegar viðskipti þessi fóru fram�??. Vísað var til þess að Sigurgeir B. Kristgeirsson væri framkvæmdastjóri bæði VSV og Herbjarnarfells og Haraldur Gíslason, starfsmaður VSV, sæti í stjórn Herbjarnarfells.
Ráðherra segist í greinargerð sinni ekki sjá að tengsl séu milli viðskipta með hlutabréf VSV og stofnfjáraukningar Sparisjóðsins. Vísað er til þess að stofnfé Sparisjóðsins hafi verið aukið um alls 904 milljónir króna, þar af hafi hlutur VSV verið 50 milljónir króna. Fleiri hafi tekið þátt í að að auka stofnfé Sparisjóðsins á sama tíma; Bæjarsjóður Vestmannaeyja, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja og verkalýðsfélagið.
Ráðherra sér heldur enga ástæðu til að fjalla um það álit Stillu útgerðar að Helga Jónsdóttir, þáverandi ráðuneytisstjóri, hafi verið vanhæf við ákvörðun um ­endurupptöku eldra máls, sem ­einnig varðaði tilnefningu rann­sóknarmanna.
�?etta er önnur rannsóknarbeiðnin frá Stillu útgerð sem hafnað er í Stjórnarráðinu. Stilla fór fram á það við efnahags- og viðskiptaráðherra sumarið 2011 að hann léti rannsaka tiltekna þætti í starfsemi VSV. Ráðherra hafnaði erindinu ári síðar.
Stilla sendi efnahags- og við­skiptaráðherra síðari rannsóknarbeiðnina í ágúst 2012 og ítrekaði og jók umfang erindisins í október 2012. Vegna skipulagsbreytinga í Stjórnarráði Íslands kom það í hlut atvinnu- og nýsköpunarráðherra að fjalla um síðara erindið og hann hafnaði því sem sagt 7. október síðastliðinn.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.