Bergey aftur til veiða
Bergey VE kemur til hafnar.

Bergey VE hélt til veiða að loknu kórónuveirustoppi um miðnætti á sunnudag en þá hafði skipið verið frá veiðum í vikutíma.

Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir frá því að alls smituðust sex menn úr áhöfn skipsins og þeir síðustu úr þeim hópi munu væntanlega ekki geta hafið störf á ný fyrr en á sunnudag.

Bergey sigldi strax austur fyrir land og mun væntanlega landa í Neskaupstað á fimmtudag að sögn Arnars Richardssonar, rekstrarstjóra Bergs-Hugins. Arnar segir að menn séu afar ánægðir með að þessu stoppi skuli vera lokið.
„Nú vona menn bara að það fiskist vel og þá verður allt í himnalagi á ný,“ segir Arnar.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.