Axel Ingi Viðarsson, athafnamaður og leikstjóri, opnar á næstunni bíó í Vestmannaeyjum. Eyjabúar hafa verið bíólausir í fjórtán ár að sögn Axels og segist hann finna fyrir mikilli tilhlökkun af þeirra hálfu. Bíósalurinn verður í sýningarsal Kviku menningarhúss.
Visir.is greindi frá
�??�?að er ekki alveg komin niðurnegld dagsetning á það hvenær við opnum, en þetta verður opnað í haust í Kviku,�?? segir Axel. �??�?etta verður einn salur, og mun hann taka hundrað manns í sæti.�?? Axel er ekki ókunnugur bíórekstri, en hann opnaði Selfossbíó fyrir þremur árum.
Bæjarráð samþykkti hugmyndina á fundi sínum í vor og sagðist fagna aukinni fjölbreytni í menningu og afþreyingu eyjarinnar. Eyjafréttir greindu þá frá áformum Axels.
Almenningur hefur síðustu áratugi dregið verulega úr ferðum sínum í kvikmyndahús bæði vegna aukins niðurhals og aukins aðgengis að streymisþjónustu. Kjarninn greindi frá því í júlí að kvikmyndahúsum á Íslandi hafi fækkað um helming síðan árið 1995, úr 31 í 16. �?ll kvikmyndahús, sem hefur verið lokað frá árinu 1995, voru utan höfuðborgarsvæðisins.
�?rátt fyrir þetta segir Axel reksturinn hafa gengið vel á Selfossi og stefnir hann að því að opna annan sal þar í lok mánaðarins eða í byrjun september. Axel segir minni samkeppni spila þar inn í. �??�?g er ekki með neina samkeppni. Í Reykjavík er fjöldi kvikmyndahúsa og miklu erfiðara fyrir þau að starfa vegna samkeppni. �?g slepp við hana. En bíórekstur er ekki auðveldur rekstur, það koma hæðir og lægðir.”
Axel áætlar að um átta til tíu manns muni starfa hjá bíóinu, sem mun einungis sýna nýjar myndir. Verðmiðinn verður svipaður og í öðrum bíóum eða um 1.550 krónur. Axel segist reikna með að þurfa 20 þúsund gesti á ári til að bíóið borgi sig. �??Markaðssetningin skiptir öllu máli og svo verða Eyjamenn að átta sig á því að ef þeir sækja ekki bíóið verður þetta líklega aldrei gert aftur þar,�?? segir Axel. Um 34 þúsund manns sóttu Selfossbíó á síðasta ári.
Í dag er Selfossbíó með daglegar sýningar og samtals þrjátíu sýningar í viku. Axel ætlar að fara hægar af stað í Eyjum. �??Við ætlum að hafa sýningar frá fimmtudegi til sunnudags, þannig að samtals verða það um sjö til átta sýningar í viku. Við ætlum ekki að byrja í neinu brjálæði og fara svo að minnka, heldur byrja rólega og fjölga svo frekar sýningum.�??