Sá sjúkdómur sem er í hvað mestri sókn á Vesturlöndum þessi árin er áunnin sykursýki af gerð tvö. Aukin þyngd manna og auknar kyrrsetur bjóða heim þessum vágesti. Talið era ð hundruð manna á Íslandi gangi með sykursýki án þess að vita það. �?essi sjúkdómur leggur fólk að velli hljóðlega og er án einkenna lengi framan af en getur valdið blindu og eyðilagt blóðrásina í fótum ef hann greinist ekki fljótt. Greiningin er einföld og smá blóðdropi getur bent til að ástæða sé til að leita læknis.
Markmið Lionshreyfingarinnar era ð leggja sitt lóð á vogaskálarnar til að hemja þennan vágest.
Hvetjum sem flesta til að mæta í Apótekarann milli kl. 15:00 og 17:00.
Lionsklúbbur Vestmannaeyja