Bókunarkerfi Herjólfs komið aftur í gagnið
Bidrod Bbilar Herj 2022
Herjólfur í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Herjólfur ohf. hefur tilkynnt að bókunarkerfi félagsins sé komið aftur í fulla virkni eftir bilanir í rétta viku vegna eldsvoða í gagnaveri í Amsterdam þar sem kerfið er hýst..

Fram kemur í tilkynningu að allar bókanir sem borist hafi síðustu daga hafi nú verið færðar inn í kerfið og að farþegar geti aftur bókað ferðir með eðlilegum hætti. Þá þakkar félagið viðskiptavinum sínum fyrir skilning og þolinmæði meðan unnið var að lagfæringum.

Herjólfur siglir sex ferðir til Landeyjahafnar í dag, fimmtudaginn 14. maí. Brottfarir frá Vestmannaeyjum verða klukkan 07:00, 09:30, 12:00, 14:30, 17:00 og 19:30. Frá Landeyjahöfn verður siglt klukkan 08:15, 10:45, 13:15, 15:45, 18:15 og 20:45.

Á föstudag hefur að svo stöddu aðeins verið gefin út áætlun fyrir fyrri hluta dags. Þá verður brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00 og 09:30, en frá Landeyjahöfn klukkan 08:15 og 10:45. Nánari upplýsingar um siglingar síðar á föstudeginum verða birtar á föstudagsmorgun.

Nýjustu fréttir

Hátt í 50 manns við síldarvinnslu hjá VSV
Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.