Bónus-vinningur til Eyja
Lotto 3
Þrír voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra rúmlega 352 þúsund krónur í sinn hlut.

Ljónheppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 78 milljónir króna í vinning. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Þá voru þrír með bónusvinninginn og fær hver þeirra rúmlega 352 þúsund krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Bensínsölunni Kletti í Vestmannaeyjum, Gullnesti, Gylfaflöt 1-3 í Reykjavík og í appinu.

Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en sex miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur. Einn miði var keyptur í Happahúsinu, Kringlunni 8-12 í Reykjavík, tveir í appinu og þrír eru í áskrift, segir í tilkynningu á vef Íslenskra getspár.

Tölur kvöldsins má sjá hér að neðan.

Lottotolur 240824
Skjáskot/lotto.is

Nýjustu fréttir

Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.