Börnin hlupu í blíðunni
K94A0790
Hlaupið af stað. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Í morgun tóku nemendur GRV þátt í Skólahlaupi ÍSÍ. Eftir hlaupið voru grillaðar pylsur fyrir nemendur. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og ekki skemmdi veðrið fyrir. Ólympíuhlaup ÍSÍ áður Norræna skólahlaupið hefur verið fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla allt frá 1984 þegar það fór fyrst fram.

Á vef ÍSÍ segir að með Ólympíuhlaupi ÍSÍ sé leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og líðan. Nemendur hafa hingað til getað valið á milli þriggja vegalengda þ.e. 2,5 km, 5 og 10 km, en nú geta skólarnir ákveðið þessar vegalengdir sjálfir allt eftir því hvað umhverfi skólanna býður upp á. Að hlaupinu loknu fær hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá fjölda þeirra sem hlupu ásamt heildarvegalengd sem hlaupin var. Það skal tekið fram að hér er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt.

Góð þátttaka hefur verið í hlaupinu frá upphafi og er það fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla á landinu. Ólympíuhlaupið er liður í Íþróttaviku Evrópu og er hlaupið formlega opnað í einum skóla ár hvert. Halldór B. Halldórsson fylgdist með hlaupi barnanna í gegnum linsuna. Myndband hans má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn
Nýr áfangi í rannsóknum Eyjaganga að hefjast
Afmælishátíð Landhelgisgæslunnar í Eyjum frestað
Litla-Hraun jafnað við jörðu
Segja mismunun felast í reglum um vinnuskólann
Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland 
Terra fær ekki samþykktar breytingar á gjaldskrá
ÍBV og FH skiptu með sér stigunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.