Breytingar á umferðarskipulagi yfir Þjóðhátíð

Eftirfarandi breytingar á umferðarskipulagi í Vestmannaeyjum taka gildi kl. 13:00 föstudaginn 4. ágúst nk. og gilda til kl. 19:00 mánudaginn 7. ágúst nk.:

– Hámarkshraði á Dalvegi verður lækkaður úr 50 km/klst. í 15 km/klst. og framúrakstur bannaður.

– Umferð um Dalveg verður einungis leyfð til að leggja í bifreiðarstæði og til að skila og sækja fólk.

– Akstur stærri ökutækja verður bannaður um Dalveg nema fyrir ökutæki til fólks- eða vöruflutninga á vegum þjóðhátíðarnefndar.

– Hámarkshraði á Hamarsvegi frá Áshamri að Brekkugötu verður lækkaður úr 50 km/klst. í 30 km/klst.

– Bifreiðastöður verða einungis heimilar á sérmerktum bifreiðarstæðum. Búast má við að bifreiðar, sem lagt verður utan merktra bifreiðastæða verði fjarlægðar og teknar í vörslu lögreglu á kostnað eiganda.

Þar sem gera má ráð fyrir að bifreiðarstæði verði mjög takmörkuð við Dalveg er þjóðhátíðargestum bent á sérstaklega merkt bifreiðarstæði í nágrenni við Herjólfsdal á öðrum merktum svæðum sem auglýst hafa verið.

Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.