Breytt siglingaáætlun Baldurs næstu daga
Baldur á leið til Eyja. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Breytingar hafa verið gerðar á siglingaáætlun Baldurs sunnudaginn 28. júní og mánudaginn 29. júní. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna falla niður þrjár ferðir frá Vestmannaeyjum á sunnudag, klukkan 08:15, 10:45 og 20:45, auk þriggja ferða frá Landeyjahöfn klukkan 09:30, 12:00 og 22:00.

Jafnframt falla niður allar þrjár áætlaðar ferðir Baldurs á mánudag. Það eru brottfarir frá Vestmannaeyjum klukkan 10:45, 15:45 og 18:15 og frá Landeyjahöfn klukkan 12:00, 14:30 og 17:00.

Samkvæmt tilkynningu Herjólfs ohf. verður siglingaáætlun Baldurs á sunnudag því sem hér segir:

Frá Vestmannaeyjum:

  • 13:15
  • 15:45
  • 18:15

Frá Landeyjahöfn:

  • 14:30
  • 17:00
  • 19:30

 

Farþegar sem eiga bókað í þær ferðir sem falla niður eru beðnir um að hafa samband við afgreiðslu Herjólfs til að gera ráðstafanir vegna bókunar sinnar, segir að endingu í tilkynningunni. Baldur hefur undanfarnar vikur sinnt hluta af áætlunarsiglingum milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja á meðan Herjólfur býr við skert vélarafl.

Nýjustu fréttir

Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Óvenjulegir tónleikar í sundlauginni – myndir
Stjórnendur Herjólfs gestir á laugardagsfundi í Ásgarði
Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.