Breytt umferðarskipulag vegna Þjóðhátíðar 2025

Lögreglan í Vestmannaeyjum vill vekja athygli bæjarbúa og gesta á breytingum á umferðarskipulagi vegna Þjóðhátíðar. Breytingarnar taka gildi kl. 13:00 föstudaginn 1. ágúst og gilda til kl. 19:00 mánudaginn 4. ágúst.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

  • Dalvegur: Aðeins þeir sem hafa fengið sérstakt leyfi frá Þjóðhátíðarnefnd mega aka inn í Herjólfsdal.

  • Hraðatakmarkanir: Hámarkshraði á Dalvegi verður lækkaður úr 50 km/klst. í 15 km/klst. og framúrakstur verður alfarið bannaður.

  • Forgangur í umferð: Umferð sem kemur af Dalvegi hefur forgang fram yfir umferð sem ekur austur Hamarsveg.

  • Hamarsvegur: Á kaflanum frá Áshamri að Brekkugötu verður hámarkshraði lækkaður úr 50 km/klst. í 30 km/klst.

  • Bifreiðastæði: Bifreiðum er einungis heimilt að leggja á merktum bílastæðum. Lögreglan vekur sérstaka athygli á því að bílar sem lagt er utan við merkt stæði kunna að verða fjarlægðir og teknir í vörslu lögreglu á kostnað eigenda.

Lögreglan biður fólk að sýna tillitssemi og virða reglur til að tryggja öryggi og greiða umferð yfir Þjóðhátíðarhelgina.

Nýjustu fréttir

Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.