Byggjum upp með framtíðina að leiðarljósi
29. desember, 2022

Síðastliðinn vetur, í framhaldi af tíðum leka í Íþróttamiðstöðinni, ritaði ég á fésbókarvegginn minn vangaveltur um framtíðarsýn varðandi Íþróttamiðstöðina. Mig langar aðeins að varpa þeim fram aftur og þá sérstaklega eftir að hafa skoðað ný húsnæði á höfuðborgarsvæðinu þar sem fjölþætt þjónusta sveitarfélaga er undir sama þaki eða samtengd. Við í Vestmannaeyjum stöndum frammi fyrir því að margar byggingar þarfnast mikillar endurnýjunar, stækkunar eða tilfærslu. Nú held ég að við ættum að staldra við og kannski hugsa þetta allt upp á nýtt, byrja með autt blað og byrja að teikna og skipuleggja alveg upp á nýtt með framtíðina að leiðarljósi, hvað varðar kostnað, nýtingu og staðsetningu.

Ein pæling sem mig langar að kasta fram er sú að í stað þess að reyna endalaust að tjasla upp á Íþróttamiðstöðina okkar við Brimhóla, að byggja upp nýtt fjölnota hús og nýta það svæðið líka fyrir aðra starfsemi.  Hús þar sem skólar, sundlaug, íþróttahús, þreksalir, æfingasalur, bío/leikhús, bókasafn, kaffihús og mötuneyti og jafnvel önnur þjónusta, allt undir sama þaki eða a.m.k á sama svæðinu.

Ef byggja á upp nýtt íþróttasvæði fyrir ÍBV-íþróttafélag á neðra svæði, eins og ÍBV íþróttafélag leggur til,  þá er samt sem áður hægt að byggja þetta hús upp með það í huga. Lokaútfærslan er ekki ástæða þessarar vangaveltu, frekar grunnpælingin í að reyna að byggja upp framtíðarhúsnæði, samnýta eða selja önnur mannvirki og lóðir í bænum.

Ef við rýnum aðeins í stöðuna:
Hamarsskóli er að verða of lítill og þarfnast stækkunar og það er á dagskrá að fara í stækkun á honum og að Tónlistarskólinn verði þar en það breytir ekki þeirri stöðu að tveir skólar yrðu starfandi sem krefst fleira starfsfólks. Eins og staðan er núna þá er ekkert mötuneyti í skólunum og ef byggt verður mötuneyti í Hamarsskóla þá mun það samt vanta í Barnaskólann.

Erum með tvær byggingar fyrir grunnskólana, Barna- og  Hamarsskóla. Elliheimilið er að verða of lítið og þarfnast lagfæringar, líklega vantar húsnæði þar á næstu árum. Sóli orðinn of lítill og umræða hafin um hvernig og hvar skuli fara í þá uppbyggingu.

Kvikmyndasalur og leikhús í Kviku eru kannski ekki upp á það besta og spurning hvort að þörf er á að endurnýja þá aðstöðu miðað við þá tækniþróun sem hefur átt sér stað.

Íþróttamiðstöðin er að mestu leyti orðið gamalt og viðhald orðið mikið og svo hefur ÍBV íþróttafélag teiknað upp framtíðarhúsnæði á sínu svæði. Fimleikar kalla eftir sérhæfðu húsnæði. Líkamsræktarsalir fyrir almenning í gömlum húsnæðum á við og dreif um bæinn, Hressó, prentsmiðjan Eyrún o.fl)

Að byggja upp framtíðarhúsnæði þar sem íþróttamiðstöðin er, við Brimhóla. Í því húsnæði yrði:

  1. Skólahúsnæði (grunnskólinn og tónlistarskólinn)
  2. Mötuneyti þar sem allir geta komið og snætt (ekki svo flókið, get sýnt myndir frá íþróttahúsum í Austurríki, Hollandi og Álaborg í Danm). Hægt að samnýta við kaffihús
  3. Bókasafn (getur verið tengt mötuneyti og kaffihúsi).
  4. Heilsuræktarsalir sem fyrirtæki geta leikt
  5. Sundlaug og jafnvel baðastað sem tengist tjaldsvæði ef það væri hægt að koma því nær íþróttahúsi?
  6. Fundarsalur eða salir sem eru þá eins konar bíósalur sem hægt er að nota fyrir alla þá starfsemi sem yrði í húsinu, þ.e skóla, íþróttafélögum ofl.
  7. Fimleikahús
  8. Íþróttahús (allavega sem skólahúsnæði)

Ávinningur:

  1. Er hægt að selja eða nýta d. grunnskólana, tónlistarhús, félagsheimilið, bókasafnið undir aðra starfsemi? Er hægt að nýta bókasafnið í eitthvað sem tengdist þá bæjarskrifstofum? Væri hægt að byggja íbúðir ofan á bókasafnið?
  2. Er hægt að nýta Hamarsskólann fyrir elliheimilið, þ.e.a.s ef Elliheimilið á að byggjast upp á þessu svæði? Væri jafnvel hægt að tengja húsnæðið saman með tengibyggingu undir Kirkjuveg?
  3. Er hægt að færa þjónustu eitthvað til á milli þessara bygginga þegar þau losna, t.d. sjúkrahúsið í Barnaskólann eða Hamarsskólann og geta þá selt sjúkrahúsið? Eða að Barnaskólinn verði notaður fyrir leikskóla osfrv?
  4. Kannski losna lóðir eða byggingar sem hægt væri að byggja upp sem íbúðir
  5. Er hægt að fækka eða samnýta starfsfólk t.d. við ræstingar og ofl.? Hægt að samnýta starfsfólk t.d. kaffihús og bókasafn?
  6. Allt á sama svæðinu, engin ganga fyrir nemendur og kennara á milli húsa.
  7. Fleiri sem kæmu inn á bókasafnið sem getur þá verið opið alla daga vikunnar
  8. Væntanlega ódýrari rekstrarkostnaður til lengri tíma litið eða hvað?

Landrými er nægt á þessu svæði og hægt að byggja á a.m.k tveimur hæðum án þess að fara yfir þá hæð sem er þegar á íþróttasölunum. Eflaust er hægt að grafa t.d bílastæðið upp sem er norðanmegin við íþróttahúsið. Það yrði virkilega gaman og áhugavert að sjá einhverja hugmyndasamkeppni um slíkt svæði.

Ég læt fylgja með krækjur sem sýna ýmsar byggingar, sem eru þegar í notkun eða sem eru að fara í byggingu víðs vegar um heiminn, sem er ætlað að nýtast sem miðstöð menntunar, menningar og íþrótta. Auðvitað eru þær misjafnlegar stórar eftir þeim samfélögum sem þeim er ætlað að þjóna. Ég hef komið í nokkrar af þessum byggingum og ég er þess fullviss um að hugmyndin sem slík getur nýst okkur hér í Eyjum. En njótið og pælið.

Erlingur þjálfar meistaraflokk ÍBV karla í handbolta og hefur þjálfað félagslið og landslið erlendis með mjög góðum árangri.

https://fram.is/svaedid-i-ulfarsardal/

https://www.arch2o.com/health-amp-sports-education-center-kang-chul-hee-idea-image-institute-of-architects/#jig[1]/8/

https://archello.com/story/26899/attachments/photos-videos/15

https://www.google.com/search?q=multi%20sport%20and%20school%20facilities&tbm=isch&tbs=rimg:CbrxAUoxA-F8YU_17FHu_1QnIJ8AEAsgIMCgIIABAAOgQIABAA&hl=en&sa=X&ved=0CBsQuIIBahcKEwjgzNuOisr6AhUAAAAAHQAAAAAQGQ&biw=1186&bih=696#imgrc=ARJLKEWb5gTopM

https://recmanagement.com/feature/201605gc01

Startseite

https://www.jeffsblog.at/2015/09/04/rio-2016-kick-off-event-one-year-to-go/

https://gigantium.dk/

https://www.archdaily.com/38538/zamet-centre-3lhd

https://papendal.com/elite-sports/elite-sports-restaurant/

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.