Deilan til ríkissáttasemjara og hefja undirbúning aðgerða
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands veitti í dag samningaráði sambandsins umboð til að vísa kjaradeilu þess við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Starfsgreinasambandið fer með umboð 16 aðildarfélaga um allt land og semur fyrir rúmlega 12 þúsund manns á almennum vinnumarkaði.
Í frétt frá SGS segir að launakröfur Starfsgreinasambandsins hafi verið birtar Samtökum atvinnulífsins á fundi í húsnæði ríkissáttasemjara mánudaginn 26. janúar. �??�?ar lýstu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins því strax yfir að kröfugerðin gæti ekki orðið grundvöllur að samningagerð og höfnuðu frekari viðræðum við samninganefnd Starfsgreinasambandsins.
Á fundi formanna aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins, sem haldin var í dag, var vonbrigðum lýst með þessi viðbrögð Samtaka atvinnulífsins, sem endurspegli mikið ábyrgðarleysi. Kjarasamningar muni ekki nást nema deiluaðilar ræðist við. Með viðbrögðum sínum hafi Samtök atvinnulífsins hins vegar ákveðið að skila auðu. Í ljósi þessara viðbragða undirbúa aðildarfélög Starfsgreinasambandsins nú að vísa deilunni til ríkissáttasemjara og hefja undirbúning aðgerða,�?? segir í fréttinni sem Björn Snæbjörnsson, formaður SGS og Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS skrifa undir.

Nýjustu fréttir

Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.