Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Andrea Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir.

Eyjakonan Díana Dögg Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen, tilvonandi leikmaður ÍBV, tryggðu sér í dag, með félagsliði sínu Blomberg-Lippe, oddaleik við Borussia Dortmund um þýska meistaratitilinn í handbolta með sigri í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu. 

Blomberg vann leikinn með einu marki, 28-27, en Dortmund hafði unnið fyrri leik liðanna með sömu markatölu. 

Báðar áttu þær stórar þátt í sigrinum en Díana Dögg skoraði þrjú mörk og gaf sjö stoðsendingar og Andrea skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar. 

Oddaleikurinn fer fram eftir viku á heimavelli deildarmeistara Blomberg-Lippe þar sem um verður skorið hvort Blomberg eða Dortmund muni hampa þýska meistaratitlinum.

Nýjustu fréttir

Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Þorskurinn eltir síldina fyrir austan
Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.