Dúkkur og sprengjur í bíó

Sumarið í ár er mikið kvikmyndasumar en stórmyndirnar Barbie og Oppenheimer verða báðar frumsýndar þann 20. júlí nk. Það hefur verið mikil eftirvænting fyrir myndunum tveimur, enda allt í þær lagt. Gerð þeirra kostaði yfir 100 millljónir bandaríkjadala hver.

Mikil áskorun er í gangi á samfélagsmiðlum að horfa á báðar myndirnar í röð og hefur þá kvikmyndaparið verið kallað Barbenheimer. Eyjabíó verður með Oppenheimer í sýningu hjá sér á föstudaginn og Barbie alla helgina.

Barbie er ein vinsælasta og mest selda dúkka í heiminum og í myndinni fáum við að fylgjast með ferðalagi hennar frá hinum fullkomna dúkkuheimi yfir í hinn harða raunveruleika. Það eru þau Margot Robbie og Ryan Gosling sem fara með hlutverk Barbie og Ken.

Margverðlaunaðir leikstjórar koma að myndunum en það er hún Greta Gerwig sem leikstýrði Barbie og Christopher Nolan sem leikstýrði Oppenheimer, sem fjallar um J. Robert Oppenheimer, föður atómsprengjunnar. Cillian Murphy fer með aðalhlutverkið í þeirri mynd.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.