Í frétt á vef Vegagerðarinnar segir að Herjólfur og Baldur sigli samtals 12 ferðir á dag til Landeyjahafnar. Dýpkunarskipið Álfsnes þarf að færa sig í hvert sinn sem siglt er um hafnarmynnið. Í ljósi þess að afkastagetan er lítil við þessar aðstæður mun Álfsnesið taka hlé næstu tvær vikur u.þ.b. og koma til baka þegar tíðni ferðanna minnkar og ljúka þá við fyrirhugaða dýpkun að þessu sinni.
Mikill vinnutími tapast við að Álfsnesið þarf að færa sig svona oft á dag. Skipið fer til dýpkunar á Ísafirði á meðan á þessu hléi stendur. Beðið er eftir að Herjólfur fari í slipp þar sem viðgerð vél, önnur af tveimur, verður sett í ferjuna.
Dýpið í hafnarmynninu er og ekki útlit að það muni breytast næstu 10 daga að minnsta kosti. Öldu- og veðurspá er einnig heldur óhagstæð til þeirra dýpkunar sem unnið hefur verið að upp við hafnargarðana sem er sú dýpkun sem eftir er. Mun betri nýting fæst með þessu móti, segir í fréttinni.
Í annarri tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að Baldur hafi um árabil verið skilgreint varaskip fyrir Herjólf. Samkvæmt útboðsskilmálum fyrir rekstur Breiðafjarðarferjunnar sé skipið rekið á þeim forsendum að það geti tekið við verkefnum Herjólfs þegar sérstakar aðstæður skapast.
Vegagerðin bendir á að þegar Baldur fer tímabundið úr siglingum á Breiðafirði sé gert ráð fyrir afleysingaþjónustu við Flatey. Í júní mun báturinn Særún sinna þeim siglingum á meðan Baldur þjónar samgöngum við Vestmannaeyjar.
Þá segir Vegagerðin að nýting Baldurs fyrir vöruflutninga yfir Breiðafjörð hafi dregist verulega saman á síðustu árum, meðal annars vegna bættra vegasamgangna á sunnanverðum Vestfjörðum.