Dýpkun við Landeyjahöfn hefur kostað 1,1 milljarð
�??�?etta er miklu meira en reiknað var með,�?? segir Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar, um kostnað við dýpkun Landeyjahafnar. Frá því höfnin var opnuð um mitt ár 2010 hefur 1,1 milljarði króna verið varið til dýpkunarframkvæmda.
Í rekstraráætlun sem gerð var þegar ákveðið var að byggja höfnina var miðað við að dæla þyrfti upp 30 þúsund rúmmetrum af sandi á ári. Sigurður segir þó að þegar höfnin var kynnt hafi verið gert ráð fyrir að magnið gæti orðið tvöfalt til þrefalt meira.
Raunin hefur verið sú að dæla hefur þurft upp milli 250 og 300 þúsund rúmmetrum af sandi upp úr höfninni á ári síðastliðin ár. �?ví hefur þurft að dæla átta til tíu sinnum meira af sandi en gert var ráð fyrir í upphafi.
Sigurður segir að í þessum reikningum hafi verið gert ráð fyrir nýjum Herjólfi sem risti ekki eins mikið. �??Mesti munurinn á áætlun og því sem reyndin varð felst í að dýpka þarf mikið meira fyrir Herjólf en nýja ferju.�??
�?á segir Sigurður að horfast verði í augu við að skilningur manna á sandburði sé ófullkominn og því hafi alltaf verið gert ráð fyrir skekkju í útreikningunum.
Nýr Herjólfur sem nú er á teikniborðinu á að rista 2,8 metra en dýpið í hafnarmynni Landeyjahafnar er nú 2,6 metrar. Sigurður segir þó að ferjan gæti siglt um höfnina á flóði.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir forsendu fyrir smíði nýs skips vera að vandi Landeyjahafnar verði leystur. �??�?að er engin ástæða til þess að smíða nýtt skip fyrr en menn eru búnir að ákveða að laga höfnina,�?? segir Ásmundur.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.