Einstök íþróttamannsleg hegðun Hrafnhildar Skúladóttur
Ansi áhugavert atvik átti sér stað í leik ÍBV og Hauka í Olísdeild kvenna í handknattleik í dag. Hrafnhildur Skúladóttir, þjálfari ÍBV, sýndi þá af sér afar íþróttamannslega hegðun. Fimmeinn.is greindi frá.
Forsaga málsins er sú að leikmaður ÍBV varð fyrir hnjaski í leiknum og var spurð af dómara leiksins hvort hún þyrfti aðstoð sjúkraþjálfara. Hún svaraði því neitandi en þá var sjúkraþjálfari Haukaliðsins engu að síður lagður af stað inn á völlinn til að hlúa að leikmanni ÍBV en Hrafnhildur hafði beðið sjúkraþjálfara Hauka um að aðstoða sinn leikmann þar sem sjúkraþjálfari ÍBV var staddur inni í klefa að hlúa að öðrum leikmanni.
�?ar sem dómarar leiksins höfðu ekki gefið sjúkraþjálfara Hauka leyfi til þess að stíga inn á völlinn fékk Haukaliðið tveggja mínútna brottvísun og þurfti að spila manni færri. �?að fannst Hrafnhildi ósanngjarnt þar sem hún hafði beðið sjúkraþjálfarann um að fara inn á völlinn. Brá hún þá á það ráð að kippa einum af sínum leikmönnum útaf líka næstu tvær mínúturnar svo áfram yrði jafnt í liðum.
Tekið skal fram að ÍBV var undir á þessum tímapunkti og liðið endaði líka á að tapa leiknum. Hrafnhildur fær þó mikið hrós fyrir þessa gríðarlegu íþróttamannslegu hegðun en ætla má að afar fáir þjálfarar hefðu gert það sama í þessari stöðu.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.