Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Verið var að steypa í síðustu viku. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Eitt tilboð barst í frágang á Gjábakkakanti, samkvæmt bæði fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs og upplýsingum frá Vegagerðinni.

Tilboðið kom frá HS Vélaverk ehf. í Vestmannaeyjum og hljóðaði upphaflega upp á 105.562.719 krónur. Það var 123,2% af áætluðum verktakakostnaði Vegagerðarinnar, sem nam 85.691.345 krónum, og því um 19,9 milljónum króna yfir kostnaðaráætlun.

Í fundargerð ráðsins kemur hins vegar fram að tilboðið nemi 99.081.819 krónum með virðisaukaskatti. Að sögn Dóru Bjarkar Gunnarsdóttur, hafnarstjóra, skýrist þessi munur af því að eftir opnun tilboða hafi verið samið við verktakann um tiltekna verkliði sem leiddi til lækkunar á heildartilboðinu.

Í verkinu er gert ráð fyrir meðal annars jarðvinnu, gerð stoðveggjar og undirstöðum fyrir ljósamöstur, auk lagnaframkvæmda. Þar undir falla lagnaskurðir, ídráttarör og vatnslögn, sem og steypa á þekju.

Ráðið hefur samþykkt að taka tilboði HS Vélaverks ehf. og falið hafnarstjóra að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.

Framkvæmdirnar eru liður í áframhaldandi uppbyggingu og frágangi svæðisins við Gjábakka. Ljósmyndari Eyjafrétta tók meðfylgjandi myndir í liðinni viku.

Nýjustu fréttir

„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.