Ekki hata �?? ný HeForShe herferð UN Women
Markmið herferðarinnar er að hvetja fólk til þess að skrá sig á www.heforshe.is og þar með skuldbinda sig til að berjast gegn netníð sem og að tileinka sér ábyrga nethegðun, beita hvorki hatursfullri orðræðu né hóta ofbeldi á netinu.
Burðarefni herferðarinnar er myndband sem sýnir hvernig gróft kynbundið ofbeldi í garð kvenna og stelpna grasserar á spjallþráðum og kommentakerfum. Listamaðurinn Kött Grá Pje fór í rannsóknarleiðangur um netheima og safnaði saman grófum og rætnum athugasemdum ungs fólks sem á vegi hans urðu. Hann leitaði aðallega fanga á Kiwi (ASKFM), Youtube og Instagram. Athugasemdirnar sem blöstu við honum eru grófar og sýna vel það grimma og dulda kynbundna ofbeldi sem fram fer á netinu. �?r athugasemdunum samdi hann ljóð sem flutt er í myndbandinu. Myndbandið varpar ljósi á það rof sem myndast milli samskipta fólks í raunheimum og á internetinu, líkt og að aðrar samskiptareglur og �??netikettur�?? viðgangist á því síðarnefnda.
Netníð gegn konum og stelpum er vaxandi samfélagsvandamál og hefur áhrif á fleiri konur en við gerum okkur grein fyrir. �?að er margþætt og á sér ólíkar birtingarmyndir. Herferðin beinir sjónum fyrst og fremst að hatursfullum athugasemdum og hótunum í garð kvenna og stúlkna á netinu, stafrænu kynferðisofbeldi (dreifingu á viðkvæmum og persónulegum upplýsingum eða myndum á netinu án samþykkis þess sem efnið snertir) og eltingum/eftirliti þegar fylgst er með þolandanum m.a. með aðstoð GPS-tækni.
�?eirri orðræðu, sem sýnd er í myndbandinu er ætlað að ögra og hreyfa við fólki. �?ll þau ummæli sem fram koma í myndbandinu eru nú þegar á netinu og öllum aðgengileg. �?ess má geta að herferðin var unnin í góðu samstarfi við Landsbankann sem er jafnframt bakhjarl herferðarinnar.
Ekki hata! Skráðu þig núna á www.heforshe.is
“;”ekkihata

Nýjustu fréttir

Ágæt veiði hjá Eyjunum
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.