Elliði Vignisson: Lítil mynd, en stór tíðindi
�?að kann að vera að myndin hér til hliðar virki lítilfjörleg. Í henni er engu að síður fólgið fyrsta skrefið að næsta áfanga í því að bæta samgöngur við Vestmannaeyjar. Hún sýnir fyrstu stálplötuna í nýja Vestmannaeyjaferju vera skorna niður í skipasmíðastöðinni Crist í Póllandi og reiknað er með að skrokkurinn verði settur saman í haust. Gangi allt eftir verður ný Vestmannaeyjaferja afhent í Póllandi 20. Júní á næsta ári og hefur siglingar fyrir þjóðhátíð á næsta ári.
Ný kynslóð af ferju
Sú ferja er í öllum megin dráttum sambærileg og núverandi Herjólfur í stærð en ber þó umtalsvert meira bæði af bílum og farþegum. Að sjálfsögðu verður hún með fullt haffæri til siglinga um öll heimsins höf, þar með talið til �?orlákshafnar. Mestu skiptir samt að henni er ætlað að sigla við allt annað öryggi í Landeyjahöfn og ráða við amk. 3,5 ölduhæð. Hin nýja ferja er algerlega ný kynslóð af ferjum, búin �??azipull�?? skrúfum, tvinntækni og fl. sem ekki hefur verið í farþegaskipum við Ísland áður.
Allt gengur vel
Undirbúningur hefur gengið vel. Unnið hefur verið að því að fá þann raf- og vélbúnað sem til þarf en talsverður afgreiðslufrestur vill oft verða á slíku. �?á hefur einnig verið unnið í smávægilegri útfærslum og lokahönnun á til dæmis loftræstibúnaði auk þes sem líkanið var prófað til að reyna skrúfurnar, ganga frá loka útfærslu á þeim og finna út viðnám skrokks og fleira. �?fugt við það sem sögurnar hafa sagt hér í Eyjum þá gekk það allt saman vel.
Breyta þarf höfninni
Fyrirliggja fyrirheit samgönguyfirvalda um að smíðatíminn verði nýttur til að gera nauðsynlegar breytingar á höfninni sjálfri og ber þar hæst breyting á innrigörðum (austan við viðlegukanntinn) sem og ný aðferð til dýpkunar sem tryggja á nægt dýpi í innsiglingunni.
Nóg komð af kyrrstöðu
�?að er nóg komið af kyrrstöðu. Samfélagið hér í Eyjum þarf á því að halda að samgöngur verði færðar til betri vegar.

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.