Enginn sandur inn í höfnina í heilan mánuð
Samkvæmt mælingum í Landaeyjahöfn með eins mánaðar millibili í febrúar og mars hefur lítill sem enginn sandur borist inn í höfnina þrátt fyrir sunnanáttir og á stundum mikla ölduhæð. Meðfylgjandi eru dýptarmælingar annars vegar 26. febrúar og hins vegar í fyrradag 22. mars. Eins og sést þá er dýpið meira í seinni mælingunni en það svarar til þess sem dýpkað var á tímabilinu.
�??Á þessu tímabili var Herjólfi siglt sjaldan til Landeyjahafnar vegna veðurs og verkfalls en ekki vegna ónógs dýpis,�?? sagði Sigurður Áss Grétarsson framkvæmdarstjóri siglingasviðs vegagerðarinnar.
�??Að vísu takmarkar dýpið á rifinu utan við höfnina siglingar Herjólfs á stórstraumsfjöru og í hárri öldu. Í veðrum eins og hafa verið sl. þrjár vikur hefur fram til þessa sest töluvert af sandi í hafnamynnið en nú hefur það ekki gerst. �?etta er jákvætt teikn um að unnt verði að tryggja nægjanlegt dýpi í höfninni í framtíðinni.
Form hafnarinnar virðast sjá til þess að sandurinn fari að mestu framhjá eins og að var stefnt. �?au vandræði sem hefur verið vegna ónógs dýpis má því rekja að mestu til eldgosins í Eyjafjallajökli. Í framtíðinni verður ef til vill vandkvæðið með dýpi eingöngu vegna rifsins eins og niðurstöður rannsókna sýndu. Unnið er að athugun á endurbótum á innri höfninni og að stækka landgræðslu svæðið til að draga úr sandfoki,�?? sagði Sigurður Áss.

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.