
Þó svo að ég hafi flutt erlendis fyrir mörgum árum síðan þá hef fylgst vel með Vestmannaeyjum og verið gríðarlega stoltur yfir þeim árangri sem bærinn náði frá árinu 2006 . En nú þykir mér leitt að sjá hvernig farið er með þá góðu fjármuni sem fékkst við söluna á hlutnum í Hitaveitu Suðurnesja.
Mjólkurkúin
Hvernig varð mjólkurkúin til?
Mjólkurkúin okkar hefur horast um tæpan 1.5 milljarð
Á sama tíma og lífeyrissjóðir skila afbragðsávöxtun er mjólkurkúin okkar á leið í sláturhúsið með áframhaldandi fjármálaóstjórn. Eflaust eru fjölmargar ástæður fyrir því, en hér eru nokkrar nefndar:
Eldri borgarar látnir borga
Okkar sameiginlegi sjóður hjá bænum minnkar þrátt fyrir auknar tekjur af eldri borgurum.
Erum við á hraðferð til Reykjavíkur?
Þetta eru kunnugleg skref og þau feta sig í átt að Reykjavíkurborg.
Ég mun setja X við D, því ég kýs ábyrga fjármálastjórn. Til þess að vera í fremstu röð sveitarfélaga varðandi þjónustu til íbúa þá þarf mjólkurkúin að gefa vel af sér til þess að þjónustustig, fjárfestingar og skilyrði fyrir búsetu séu framúrskarandi.
Birgir Stefánsson
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.