Eygló ehf, hefur sent þeim fjarskiptafélögum á heildsölumarkaði sem óskað hafa eftir því að fá að selja inn á kerfi félagsins, fyrsta listann yfir þau heimili í Vestmannaeyjum sem eru klár í að tengjast ljósleiðarakerfi Eyglóar.
Það eru Dverghamar 15 – 41 sem koma fyrst inn á kerfið.
Eygló ehf. mun reka ljósleiðarann sjálfan sem er grunnstoð kerfisins en fjarskiptafélögin koma með þann búnað sem til þarf.
Sala inn á kerfið er í höndum þeirra þjónustuveitna sem selja inn á kerfi Mílu og Ljósleiðarans (Gagnaveitan). Einnig er Tölvun ehf í Vestmannaeyjum komin inn með sinn búnað.
Íbúar á Dverghamri 15 – 41 geta nú haft samband við sinn þjónustuaðila og óskað eftir uppfærslu í ljósleiðaratengingu.
Rétt er að taka það fram að Eygló ehf. sinnir einungis þessum þremur fjarskiptafélögum sem samið hafa við félagið. Öll notendaþjónusta og sala er í höndum fjarskiptafélaga á endursölumarkaði.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst