ÍBV og Valur áttust við í 11. umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í kvöld þar sem ÍBV vann sterkan 2-1 sigur.
Eyjakonur byrjuðu fyrri hálfleikinn mjög vel og uppskáru mark á 12. mínútu leiksins. Boltinn barst þá á Fridrikku Marie Clementsen inn á teig Vals og hún setti boltann örugglega í netið. Markadrottningin Allison Grace Lowrey kom ÍBV í 2-0 fimm mínútum síðar eftir frábæran undirbúning Olgu Sevcovu. Þannig var staðan í hálfleik og ÍBV með öll völd á vellinum.
Valskonur komu ögn beittari inn í síðari hálfleikinn og reyndu hvað þær gátu að minnka muninn. Eyjakonur áttu mörg góð upphlaup og hefðu getað gert út um leikinn fyrr. Valskonum tókst loks að klóra í bakkann en ekki fyrr en á 90. mínútu leiksins. Arnfríður Auður Arnarsdóttir átti þá frábært skot af 20 metrum og boltinn söng í netinu. Nær komust þær ekki og 2-1 sigur ÍBV staðreynd.
Eftir ellefu leiki er ÍBV í fjórða sæti með 20 stig og halda í við toppliðin. Valskonur eru í sjöunda sæti með tíu stig.
Í gær:
Stjarnan 3 – 2 Þór/KA
Þróttur R. 0 – 1 Fram
Í dag:
ÍBV 2 – 1 Valur
Breiðablik 4 – 1 Víkingur R.
Á morgun:
19:15 Grindavík/Njarðvík – FH