Eyjakonur sækja Grindavík/Njarðvík heim
Úr fyrri leik liðanna. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Eyjakonur mæta Grindavík/Njarðvík á JBÓ-vellinum í kvöld þegar 14. umferð Bestu deildar kvenna hefst. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og mikið er undir í baráttunni um efri hluta deildarinnar.

ÍBV situr í 4. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 13 leiki, en Grindavík/Njarðvík er í 5. sæti með 16 stig. Með sigri geta Eyjakonur styrkt stöðu sína meðal efstu liða deildarinnar og aukið bilið niður í liðin fyrir neðan.

Liðin gerðu bæði jafntefli í síðustu umferð. ÍBV hefur unnið tvo af síðustu fimm deildarleikjum sínum, gert eitt jafntefli og tapað tveimur. Tveir aðrir leikir fara fram í Bestu deild kvenna í kvöld. Þór/KA tekur á móti Fram á Akureyri og á Hlíðarenda mætast Valur og Víkingur Reykjavík.

Leikir kvöldsins

  • 18:00: Grindavík/Njarðvík – ÍBV (JBÓ-völlurinn)
  • 18:00: Þór/KA – Fram (VÍS-völlurinn)
  • 19:15: Valur – Víkingur R. (N1-völlurinn Hlíðarenda)

Eyjafréttir verða með umfjöllun um leikinn að honum loknum.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.