Eyjakvöldin lengi lifi
Hópurinn sem stendur að tónlistarsveitinni Blítt og létt á mikið hrós skilið fyrir að viðhalda einum helsta menningararfi Vestmannaeyja hátt á lofti, sjálfri Eyjatónlistinni. Hálfsmánaðarlega stendur hópurinn fyrir Eyjakvöldum á Kaffi Kró, þar sem Eyjalögunum er gert hátt undir höfði. Vestmannaeyingar og gestir þeirra hafa svo ekki látið sitt eftir liggja því yfirleitt er fullt hús á þessum kvöldum. Ekki er nóg með að Blítt og létt hópurinn standi fyrir þessum tónlistarkvöldum í Eyjum, heldur hafa þeir heimsótt meginlandið og kynnt þessa tónlist meðal annarra Íslendinga við góðar undirtektir. Í kvöld verða þeir svo ásamt öðrum Eyjamönnum á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi, að afloknum minningartónleikum um Ása í Bæ.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.