Smári MacCarthy mun leiða fleiða framboð Pírata í Suðurkjördæmi. Hann hefur mikinn áhuga á samfélaginu og skipulagi þess. Hann hefur verið búsettur erlendis en ákvað að snúa aftur heim og ætlar sér að hjálpa til við að endurræsa Ísland.
Hvað ertu að aðhafast við þessa daganna?
– Aðallega að þvælast um Suðurlandið að kynna mér aðstæður, reyna að læra allt sem ég get. Suðurkjördæmið er stórt, miklir hagsmunir í sjávarútvegi og landbúnaði, samgöngur í molum, heilsugæslur í vondri stöðu, og fleira til. Mikið að læra áður en við förum af fullum krafti í kosningabaráttuna.
Hvað var til þess að þú ákvaðst að gefa kost á þér?
– �?g hef mikinn áhuga á samfélaginu og skipulagi þess, en hef undanfarin ár orðið fyrir miklum vonbrigðum með stjórnmálin. Mælirinn fyltist á einhverjum tímapunkti, og þá voru Píratar augljósa svarið. �?g hef unnið undanfarin ár í Austur-Evrópu við rannsóknir á skipulagðri glæpastarfsemi og spillingu, en ákvað að flytja heim og taka til hendinni við að endurræsa Ísland. Við höfum svo rosalega mikla möguleika á því að byggja gott samfélag hérna, og það er ömurlegt að horfa á slík tækifæri sóast.
Hvaða málefni brenna helst á þér og hvað er það sem þú mundir vilja koma í gegn ef þú ferð inná þing?
– �?g vil skoða stóru myndina. �?g vil sjá nýjar grunnstoðir fyrir samfélagið okkar: opnari stjórnsýslu, meira traust í stjórnkerfinu, nýja stjórnarskrá. �?g held við getum byggt sterkara hagkerfi með frjálsari atvinnuvegum og meiri nýsköpun. �?að þarf líka að uppræta mikla spillingu. �?etta allt þarf að gera til að geta lagað þau stórkostlegu vandamál sem eru til staðar í heilbrigðiskerfinu, í menntakerfinu, og víðar. Mér finnst þetta allt stórkostlega áhugavert, og margt sem þarf að gera.
Í tilefni að nýju kvótaári, hver telur þú framtíð kvótakerfisins vera?
– Kvótakerfið er ágætt, en fiskveiðistjórnunarkerfið er það ekki. �?thlutunarreglurnar, braskið og samþjöppunin eru að valda mörgum byggðum mikinn skaða meðan fáir græða. Við viljum færa okkur smám saman yfir í uppboðskerfi, því það tryggir betur jafnt aðgengi, atvinnufrelsi, hagsmuni sjómanna, og eykur möguleika á nýliðun. En við viljum alls ekki kippa fótunum undan stórum og stöndugum útgerðum �?? við vitum að sumar útgerðirnar eru hræddar við hugmyndirnar okkar, en þær áhyggjur eru óþarfar. Markmiðið er að stuðla að sanngjarnara kerfi fyrir alla, en við vitum líka að þetta er flókið og margir fletir á þessu. �?g vona að fólk kynni sér stefnu Pírata í sjávarútvegsmálum sjálfstætt, en hafni þeim ekki bara vegna hræðslu við breytingar.
– Píratar eru nýtt stjórnmálaafl, sem hefur þó fengið smá tækifæri til að sanna sig. Okkar fólk hefur staðið sig rosalega vel, en það þarf meira en þrjá þingmenn í stjórnarandstöðu til að breyta heiminum. Framtíðin ræðst að miklu leyti af því hvaða ákvarðanir verða teknar 29. október næstkomandi: hvort ætlum við að halda gjörspilltu fúskaramenningunni á Alþingi á lofti með sömu gömlu aðferðafræðinni, eða að gera eitthvað nýtt? �?að er ykkar að velja. En hvað sem fólk velur, þá er mikilvægast að mæta á kjörstað, sagði Smári að lokum.