Eyjamenn lögðu Aftureldingu
ÍBV vann í gærkvöld sig­ur á efsta liði Olís-deild­ar karla í hand­bolta, Aft­ur­eld­ingu, í Mos­fells­bæ í 17. um­ferðinni, 34:29. Leik­ur­inn var jafn og spenn­andi þar til í blá­lok­in. Mbl.is greindi frá.
Aft­ur­eld­ing er áfram á toppi deild­ar­inn­ar með 24 stig, tveim­ur stig­um á und­an Hauk­um sem töpuðu fyr­ir Stjörn­unni. ÍBV er með 18 stig.
Ró­bert Aron Hostert sneri aft­ur á völl­inn eft­ir að hafa misst af stærst­um hluta tíma­bils­ins vegna meiðsla, og hann skoraði 10 mörk fyr­ir Eyja­menn.
Liðin skipt­ust á að hafa for­yst­una í leikn­um en staðan í hálfleik var 17:15, ÍBV í vil. Aft­ur­eld­ing komst yfir, 21:20, um miðjan seinni hálfleik og náði mest þriggja marka for­skoti, 24:21. �?á tóku Eyja­menn aft­ur við sér og miklu munaði um landsliðsmann­inn Kára Kristján Kristjáns­son sem virt­ist geta skorað að vild af lín­unni á lokakafla leiks­ins.
Mun­ur­inn var aðeins tvö mörk þegar 2 mín­út­ur lifðu leiks en heima­menn gáf­ust upp og hleyptu mun­in­um upp í fimm mörk áður en yfir lauk. Árni Bragi Eyj­ólfs­son var þeirra marka­hæst­ur með 10 mörk, þar af 6 af vítalín­unni. Ern­ir Hrafn Arn­ar­son, sem lék sinn fyrsta leik fyr­ir upp­eld­is­fé­lagið eft­ir að hafa komið heim úr at­vinnu­mennsku, skoraði þrjú mörk.
Eyja­menn end­ur­heimtu ekki bara Ró­bert Aron fyr­ir leik­inn í kvöld, því Sindri Har­alds­son og Theo­dór Sig­ur­björns­son voru einnig með á ný eft­ir að hafa verið meidd­ir fyr­ir jóla- og HM-fríið. �?á er Stephen Niel­sen markvörður kom­inn aft­ur eft­ir láns­dvöl í Frakklandi.
Niel­sen náði sér ekki á strik í kvöld, ekki frek­ar en nokk­ur markv­arðanna. Kol­beinn Arn­ars­son hrökk þó í gang á lokakafla leiks­ins og varði nokk­ur skot.

Nýjustu fréttir

Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.