Eyjastúlkur með sigur á KA/�?ór
Eyjastúlkur unnu í dag öruggan átta marka sigur á heimavelli gegn KA/�?ór. Stelpurnar okkar byrjuðu leikinn mjög illa en náðu fljótt tökum á leiknum og sigldu sigrinum heim, lokatölur voru 25:18.
�?að voru gestirnir sem byrjuðu leikinn betur og skoruðu fyrstu tvö mörkin. Eyjastelpurnar jöfnuðu metin og var staðan 2:2 eftir tíu mínútna leik. �?á tók við góður kafli hjá gestunum sem komust fjórum mörkum yfir 2:6. Vörnin small þá hjá ÍBV sem náði að skora átta mörk í röð áður en liðin gengu til búningsherbergja, staðan var þá 10:6 okkar stelpum í vil.
Vera Lopes lék vel og skoraði meðal annars fjögur mörk á þessum góða kafla stelpnanna. Hún skoraði einnig fyrsta markið í síðari hálfleik og ÍBV þá búið að skora níu mörk í röð. Gestunum tókst þá loksins að skora á ný. �?egar um það bil tíu mínútur voru eftir af leiknum voru gestirnir búnir að minnka muninn í eitt mark þegar staðan var 15:14.
Annar frábær kafli Eyjastúlkna tók þá við en þær skoruðu átta af síðustu níu mörkum leiksins. Sigurinn því í höfn eins og áður segir og lokatölur 23:15. Stelpurnar okkar styrkja því stöðu sína í fimmta sæti deildarinnar.
Mörk ÍBV í dag: Vera Lopes 7, Kristrún �?sk Hlynsdóttir 5, Elín Anna Baldursdóttir 4, Ester �?skarsdóttir 3, Díana Dögg Magnúsdóttir 2 og Telma Amado 2.

Nýjustu fréttir

Mikilvægur sigur ÍBV gegn Víkingi R.
Terra segir upp samningi við Vestmannaeyjabæ
Dalurinn – nýtt app fyrir þjóðhátíðargesti
Elena Rut – Langar að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni
Síld farin að hrygna suður af landinu
Halldór Hjörleifsson er Eyjamaðurinn
Meistaramót barna kláraðist í dag
Herjólfur III gæti orðið haffær í lok júlí
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.