Eyjatónleikarnir - Aldrei of seint að byrja
Eiður er að spila á sínum 14. Eyjatónleikum þann 24. janúar.

„Ég hef spilað á öllum Eyjatónleikunum í Hörpu, allt frá minningartónleikum um Oddgeir í nóvember 2011 og svo í kjölfarið á öllum janúartónleikunum,“ segir Eyjamaðurinn Eiður Arnarsson bassaleikari á Eyjatónleikunum.

„Held raunar að flestir í hljómsveitinni hafi komið fram á sem næst öllum tónleikunum og mögulega hefur hann Kjartan Valdemarsson vinur minn spilað á þeim öllum eins og ég. Siggi Flosa kannski líka, er ekki alveg viss. Jónsi gítarleikari, Biggi Nielsen trommari og söngvararnir Kristján Gísla og Alma Rut hafa öll staðið vaktina ansi lengi. Og Þórir hljómsveitarstjóri sömuleiðis.“

Þrátt fyrir að nú séu fjórtándu Eyjatónleikarnir  handan hornsins segir Eiður að þetta sé alltaf jafn gaman. „Það er alltaf sama tilhlökkunin. Tónleikarnir eru orðnir fastur liður í dagatalinu í janúar og alltaf jafn gaman. Það er reyndar bara alltaf gaman að spila en alveg sérstaklega í Eldborg.

En stemningin á Eyjatónleikunum er mjög sérstök. Gestir á mjög breiðum aldri,  fjölbreytt músík og hálfgerð árshátíð í hléinu. Skilaboð mín til þeirra sem aldrei hafa komið á Eyjatónleika eru; það er aldrei of seint að byrja,“ segir Eiður að endingu.

Myndir úr safni Óskars Péturs.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.